Tekjur Sýnar dragast saman milli ára og tap var á þriðja ársfjórðungi

Sýn tapaði 71 milljón króna á þriðja ársfjórðungi. Þar skipti mestu að tekjur vegna fjölmiðlastarfsemi félagsins minnkuðu um 144 milljónir króna á milli ára.

Sýn - Suðurlandsbraut
Auglýsing

Tekjur fjar­skipta- og fjöl­miðla­fé­lags­ins Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru 14,9 millj­arðar króna, sem er 454 millj­ónum krónum lægri tekjur en félagið hafði á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­aður Sýnar fyrir fjár­magns­gjöld, afskriftir og skatta var 4,1 millj­arður króna og lækk­aði um 153 millj­ónir króna á milli ára. 

Hagn­aður Sýnar var hins veg­ar  384 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019.  Lyk­ilá­­­­stæða þess að Sýn skil­aði hagn­aði er að á fyrsta árs­fjórð­ungi var bók­­­­færður sölu­hagn­aður vegna sam­runa P/F Hey, dótt­­­­ur­­­­fé­lags Sýnar hf. í Fær­eyjum og Nema, dótt­­­­ur­­­­fé­lag Tjald­urs, gekk í gegn á fjórð­ungnum og er 49,9 pró­­­­sent hlutur Sýnar hf. í nýju sam­ein­uðu félagi færður sam­­­­kvæmt hlut­­­­deild­­­­ar­að­­­­ferð og því ekki hluti af sam­­­­stæð­u­­­­reikn­ings­skilum Sýnar hf. frá byrjun þessa árs. Alls nam bók­­­­færður sölu­hagn­aður vegna þessa 817 millj­­­­ónum króna. 

Án þessa bók­færða sölu­hagnað vegna þeirrar sölu væri tap Sýnar á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 433 millj­ónir króna. Til sam­an­burðar skil­aði félagið 326 milljón króna hagn­aði á sama tíma­bili 2018. 

Auglýsing
Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Sýnar sem birtur var í dag, en alls tap­aði Sýn 71 milljón króna á þriðja árs­fjórð­ungi sem er mun minna tap en var á öðrum árs­fjórð­ungi, þegar tapið var 215 millj­ónir króna. 

Alls var eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins 36,3 pró­sent í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. 

Fjöl­miðla­tekjur minnk­uðu mest

Af tekju­straumum Sýnar hafa tekj­urnar minnkað mest í fjöl­miðla­hluta félags­ins, sem er stærsta tekju­stoð þess. Alls hafa tekjur vegna fjöl­miðla skilað Sýn 6,3 millj­örðum krónum á fyrstu níu mán­uðum árs­ins sem er 230 millj­ónum krónum minna en á sama tíma­bili í fyrra. Þar af lækk­uðu tekj­urnar á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hófst í júlí og lauk í lok sept­em­ber, um 144 millj­ónir króna. 

Tekjur félags­ins vegna fast­línu hafa líka dreg­ist umtals­vert saman það sem af er ári, eða um 163 millj­ónir króna. Tekjur af inter­neti juk­ust á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en dróg­ust skarpt saman á þriðja árs­fjórð­ungi, eða um 70 millj­ónir króna. Alls hafa þær tekjur því minnkað um 37 millj­ónir króna á árin­u.  

Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýn­ar, segir að upp­gjörið sé vitn­is­burður um að stjórn­endur hafi náð tökum á rekstr­in­um. „Nýtt spá­ferli sem unnið er eftir gefur okkur mun betri mynd af und­ir­liggj­andi þáttum og við teljum að það muni leiða til frek­ari bata í rekstri á næstu fjórð­ung­um. Sjóð­streymi 3. árs­fjórð­ungs batnar á milli ára og rekst­ur­inn batnar umtals­vert frá öðrum árs­fjórð­ungi. Aðgerðir sem gripið var til í sum­ar, með end­ur­samn­ingum við birgja og fækkun stöðu­gilda mun koma fram í rekstri við lok árs­ins og að fullu á nýju ári.“

Miklar breyt­ingar í ár

Sýn varð til þegar Fjar­­­skipti, móð­­­ur­­­fé­lag Voda­fone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­­­fundi sínum í mars í fyrra. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­­­­­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­­­skipti sam­einað fjöl­miðla­­­starf­­­semi inn í rekstur félags­­­ins sem fól í sér meðal ann­­­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Mið­l­ana höfðu Fjar­­­skipti keypt af 365 mið­l­­­um. Nafna­breyt­ingin var fram­­­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­­­semi hins sam­ein­aða félags.

Tölu­verðar breyt­ingar hafa verið að eiga sér stað á fjöl­miðla­hluta Sýnar und­an­farin miss­eri og þekktu dag­skrár­gerð­ar­fólki sagt upp störf­um. Félagið missti rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­anum yfir til sam­keppn­is­að­il­ans Sím­ans fyrir þetta tíma­bil, sem hófst á þriðja árs­fjórð­ungi, og stutt er í samn­ingur félags­ins við Torg um að fá að birta efni Frétta­blaðs­ins á vefnum Vísi.is, renni út. Heim­ildir Kjarn­ans herma að það sé 1. des­em­ber næst­kom­and­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent