Tekjur Vinstri grænna voru alls 146,7 milljónir króna í fyrra. Að uppistöðu komu þær tekjur úr ríkissjóði, eða 124,5 milljónir króna. Það þýðir að 85 prósent af tekjum flokksins komu úr sameiginlegum sjóðum.
Vinstri græn fengu 16,9 prósent í síðustu kosningum og ellefu þingmenn kjörna.
Rekstur Vinstri grænna kostaði alls 112 milljónir króna í fyrra og því skilaði reksturinn töluverðum hagnaði eða alls 33,6 milljónum króna. Flokkurinn skuldaði 7,4 milljónir króna í lok síðasta árs og lækkuðu skuldir hans milli ára úr 37,5 milljónum króna.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í útdrætti úr ársreikningi Vinstri grænna sem Ríkisendurskoðun birti í dag.
Framlög úr ríkissjóði hækkuðu um 127 prósent
Árið 2018 var fyrsta árið í rekstri þeirra stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á þingi frá því að framlög til þeirra úr ríkissjóði voru hækkuð um 127 prósent, að tillögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Framlög úr ríkissjóði til flokkanna átta á þingi áttu að vera 286 milljónir króna í fyrra en urðu 648 milljónir króna eftir að sú ákvörðun var tekin. Einu flokkarnir sem skrifuðu sig ekki á tillöguna voru Píratar og Flokkur fólksins.
Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokkarnir átta sem náðu inn á þing í haustkosningunum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúmlega 2,8 milljörðum króna úr ríkissjóði vegna áranna 2018-2021 til að standa straum af starfsemi sinni.
Fjögur félög gáfu VG 400 þúsund
Fjórir lögaðilar gáfu Vinstri grænum hámarksfjárhæð í framlag sem lög heimila á síðasta ári, eða 400 þúsund krónur. Um er að ræða HB Grandi hf. sem nú heitir Brim, Síminn, Kaupfélag Skagfirðinga, Samherji og Síldarvinnslan hf. Auk þess gaf Brim hf., sem nú heitir Útgerðarfélag Reykjavíkur, flokknum 300 þúsund krónur. Brim og Útgerðarfélag Reykjavíkur eru bæði í meirihluta eigu Guðmundar Kristjánssonar,
Ný lög samþykkt í fyrra
Ný lög um fjármál stjórnmálaflokka voru samþykkt á Alþingi í desember í fyrra. Á meðal breytinga sem þau lög fela í sér eru að stjórnmálaflokkar mega nú taka á móti hærri framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hámarksframlagið var 400 þúsund krónur en var hækkað í 550 þúsund krónur.
Auk þess var sú fjárhæð sem einstaklingur þarf að gefa til að vera nafngreindur í ársreikningum viðkomandi flokka eða frambjóðenda hækkuð úr 200 þúsund krónum í 300 þúsund krónur.
Hugtakið „tengdir aðilar“ var líka samræmt, en Ríkisendurskoðun gerði í fyrra athugasemdir við umframframlög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mismunandi félög í eigu sömu aðila.
Þá var ákveðið að láta stjórnmálaflokkanna skila ársreikningum sínum til ríkisendurskoðanda fyrir 1. nóvember ár hvert í stað 1. október líkt og nú er. Sú grundvallarbreyting fylgdi með að Ríkisendurskoðun mun hætta að birta takmarkaðar upplýsingar úr reikningum flokkanna, svokallaðan útdrátt, og birtir þess í stað ársreikninganna í heild sinni áritaða af endurskoðendum.
Þessi breyting á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagnið.