Segir Kristján Þór Júlíusson hafa hitt „hákarlana“ frá Namibíu

Í Stundinni segir að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hafi kynnt Kristján Þór Júlíusson sem „sinn mann“ í ríkisstjórninni.

samherjinn.jpg
Auglýsing

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri hjá Sam­herja í Afr­íku, segir að Krist­ján Þór Júlís­son, núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Sam­herja, hafi fundað með þremur mönnum frá Namibíu sem unnu að því að útvega Sam­herja mak­ríl­kvóta gegn mútu­greiðsl­u­m. 

Þetta kemur fram í Stund­inni, en haft er eftir Jóhann­esi að Þor­steinn Már, for­stjóri Sam­herji, hefði kynnt Krist­ján Þór sem „sinn mann“ hjá stjórn­völdum á fundi árið 2014. 

Jóhannes segir jafn­framt að Krist­ján Þór hafi ekki stoppað lengi á fund­in­um, aðeins um 10 mín­útur en erindi hans á fund­inn hafi verið óljóst. Krist­ján Þór neitar því ekki að hafa hitt menn­ina en seg­ist ekki hafa verið form­legur þátt­tak­andi á fund­in­um. Hann seg­ist aldrei hafa farið á skrif­stofu Sam­herja eftir að hann varð sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Auglýsing

Kristján Þór Júlíusson á blaðamannafundi vegna veiðigjalda.

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir enn fremur að norski bank­inn DNB NOR, sem norska ríkið á þriðj­ungs­hlut í, hafi látið loka banka­reikn­ingum félags­ins Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Mars­hall eyjum í fyrra, vegna hættu á pen­inga­þvætti. Sam­herji not­aði Cape Cod til að greiða laun sjó­manna sinna í Namib­íu, að því er fram kemur í Stund­inni.

Eins og fram hefur kom­ið, þá birti Wiki­leaks í gær 30 þús­und skjöl um Sam­herja og meðal ann­ars ítar­leg gögnum um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu og mútu­greiðslur til sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins og um fyrr­nefndra þriggja manna sem vinna náið með hon­um. Greint var fyrst frá gögn­unum og mál­inu í heild, í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveiki á RÚV í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent