Samherji kennir Jóhannesi um allt – Segjast ekkert hafa að fela

Þorsteinn Már Baldvinsson segir það mikil vonbrigði að fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins hafi „hugsanlega flækt Samherja í viðskipti sem kunni að vera ólögmæt.“

Þorsteinn Már Baldvinsson
Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í kvöld segir að svo virð­ist sem að Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri Sam­herja í land­inu, hafi „hugs­an­lega flækt Sam­herja í við­skipti sem kunni að vera ólög­mæt.“ Það séu mikil von­brigði að sögn Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, for­stjóra og ann­ars aðal­eig­anda Sam­herj­a. 

Í frétta­skýr­inga­þætti Kveiks í kvöld kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­i­heldur meðal ann­­ars tvo ráð­herra í Namib­­íu, séu mút­u­greiðslur og að við­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­u­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u. Um­fjöll­unin var unnin í sam­starfi KveiksStund­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að þar til nýlega hafi Sam­herji ekki haft neina „vit­neskju um umfang og eðli þeirra við­skipta­hátta sem Jóhannes stund­aði og óvíst er hvort þeir hafi verið raun­veru­lega með þeim hætti sem hann lýs­ir. Eins og við höfum þegar greint frá höfum við ráðið alþjóð­legu lög­manns­stof­una Wik­borg Rein í Nor­egi til að rann­saka starf­sem­ina í Namib­íu. Í þeirri rann­sókn verður ekk­ert und­an­skilið og munum við upp­lýsa um nið­ur­stöður hennar þegar þær liggja fyr­ir.“ Jóhannes er auk þess sagður hafa misst starf sitt hjá Sam­herja árið 2016 eftir að hann „mis­fór með fé og hegð­aði sér með ófor­svar­an­legum hætt­i“.

Auglýsing

Þor­steinn Már segir að stjórn­endum Sam­herja sé illa brugð­ið. „Ekki ein­ungis við það að Jóhannes stað­hæfi að hann hafi tekið þátt í starf­semi af því tagi sem hann lýsir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásök­unum sínum að fyrrum sam­starfs­fólki sínu hjá Sam­herja. Þetta eru ekki vinnu­brögð sem við könn­umst við.“

Ef rann­sókn fari fram á við­skipt­unum í Namibíu hafi „Sam­herji ekk­ert að fela“.  

Jóhannes gegst við því í þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a. 

Jóhannes sagði hins vegar að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­­steins Más. Þar kall­aði hann starf­­semi Sam­herja í Namibíu „skipu­lagða glæp­a­­starf­­semi“ þar sem fyr­ir­tækið græði á auð­lindum lands­ins en hafi svo fært alla pen­ing­anna sem það græddi út úr því til að fjár­­­festa ann­­ars staðar í heim­in­­um. 

Jóhannes var sér­­stak­­lega nefndur á nafn í yfir­­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í gær vegna yfir­­vof­andi umfjöll­unar um starfs­hætti fyr­ir­tæk­is­ins og sagt að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Sam­herja árið 2016 vegna „óá­­­sætt­an­­legrar fram­­göngu hans og hegð­un­­ar“. Það hafi gerst í kjöl­far þess að Sam­herji hefði orðið „þess áskynja í árs­­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namib­­íu“ og sent íslenskan fyrr­ver­andi rann­­sókn­­ar­lög­­reglu­­mann til lands­ins til að rann­saka mál­ið.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að Jóhannes hafi rætt við starfs­menn hér­aðs­sak­sókn­ara í dag. Í þætt­inum í kvöld kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent