Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG og nefndarmaður í atvinnuveganefnd Alþingis, hefur óskað eftir því að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mæti sem fyrst á fund atvinnuveganefndar til að fara yfir Samherjamálið. Meðal annars til að ræða hvort að ráðuneytið hafi gripið til einhverra aðgerða vegna málsins og ef svo er, til hvaða aðgerða. Rósa Björk greinir frá þessu í Facebook-færslu í morgun.
Íslensk stjórnmál geti ekki setið hjá aðgerðarlaus
„Áhrif Samherjamálsins eigum við eftir að sjá að fullu leyti. Þar undir er skattkerfi okkar og eftirlit með því, samþjöppun í sjávarútvegi, alþjóðasamvinna sem snýst ekki bara um heilindi í þróunarsamvinnu og eftirfylgni með henni, heldur líka að standa við alþjóðlega samninga um aðgerðir gegn peningaþvætti og spillingu, náin tengsl stjórnmálanna og sjávarútvegsfyrirtækja. Stjórnarskrárbreytingar sem beðið hefur verið eftir í alltof langan tíma. Orðspor okkar á erlendri grundu. Og fleira - eins ótrúlegt það kann að hljóma,“ skrifar Rósa Björk en að hennar mati er Samherjamálið af þeim skala og af því umfangi að íslensk stjórnmál geti ekki setið hjá aðgerðalaus.
Hún hefur því óskað eftir því að sjávarútvegsráðherra komi fyrir atvinnuveganefnd og ræði stöðu Samherja sem sé stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og jafnframt eitt umfangsmesta sjávarútvegsfyrirtæki í Evrópu. Enn fremur þurfi að ræða afleiðingar Samherjamálsins á önnur íslensk fyrirtæki og greinina í heild sinni.
„Á málinu eru margar hliðar en grunnkjarninn í því er samt nýting á auðlind okkar allra og útdeiling á arðinum á þeirri nýtingu. Samsöfnun auðs á fárra manna hendur, í stað þess að meiri arður af nýtingunni renni í sameiginlega sjóði okkar allra er stefið í margra ára deilum íslensks samfélags um fiskveiðistjórnunarkerfið,“ skrifar Rósa Björk.
Sjávarútvegsráðherra boðaður á fund atvinnuveganefndar Samherjamálið er af þeim skala og af því umfangi að íslensk...
Posted by Rósa Björk Brynjólfsdóttir on Sunday, November 17, 2019