Ráðuneytisstjóraskipti verða í forsætisráðuneytinu frá með 1. janúar næstkomandi þegar Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri, tekur við nýju embætti í utanríkisþjónustunni.
Þetta kemur fram í frétt forsætisráðuneytisins.
Við embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu tekur Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari. Bryndís er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti ríkissáttasemjara frá árinu 2015.
Áður var hún starfsmannastjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss og rektor við Háskólann á Bifröst. Þá gegndi Bryndís þingmennsku fyrir Alþýðubandalagið og Samfylkinguna á árunum 1995 til 2005. Hún var áður lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands og starfsmaður nefndar í dómsmálaráðuneytinu um aðskilnað umboðsvalds og dómsvalds í héraði.
Ragnhildur mun undirbúa opnun nýrrar fastanefndar Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg og taka við embætti þar 1. júní næstkomandi. Ragnhildur mun auk hefðbundins fyrirsvars og skyldustarfa á þessum vettvangi byggja upp starfsemi fastanefndarinnar í Strassborg og vinna að undirbúningi formennsku Íslands í Evrópuráðinu sem hefst árið 2022.
Ragnhildur hefur gegnt embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu í rúman áratug en var áður ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu frá árinu 2004 og fulltrúi í sendiráðinu Brussel frá 2002 til 2004. Hún starfaði í heilbrigðisráðuneytinu frá árinu 1995 og á Alþingi frá árinu 1993. Ráðherrar sem Ragnhildur hefur unnið með í þremur ráðuneytum eru á annan tuginn.