FME kallar eftir upplýsingum frá íslenskum bönkum um Samherja

Íslensku bankarnir eiga að upplýsa Fjármálaeftirlitið um það hvernig eftirliti þeirra með viðskiptum við Samherja hafi verið háttað.

Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Auglýsing

Íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem taka við inn­lánum sem hafa verið í við­skiptum við Sam­herja og tengd félög hefur verið gert að veita Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) upp­lýs­ingar um áhættu­mat þeirra á Sam­herj­a­sam­stæð­unni. Auk þess eiga fjár­mála­fyr­ir­tæk­in, sem eru að uppi­stöðu stærstu bank­arnir fjór­ir, að upp­lýsa eft­ir­litið um hvernig reglu­bundnu eft­ir­liti þeirra með við­skiptum við Sam­herja hafi verið hátt­að. 

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag

Þegar hefur verið greint frá því í fjöl­miðlum að stjórnir Íslands­banka, sem er helsti við­skipta­banki Sam­herja á Íslandi, og Arion banka hafi ákveðið að láta fara fram ítar­lega könnun á við­skiptum við Sam­herj­a­sam­stæð­una. Stjórn Lands­bank­ans hefur ekki viljað upp­lýsa um hvort að slík könnun sé að fara fram. Í Nor­egi hefur norski bank­inn DNB, helsti við­skipta­banki Sam­herj­a,  fyr­ir­skipað inn­an­hús­rann­sókn á við­skiptum hans við Sam­herja eftir að greint var frá því að reikn­ingar útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins hjá DNB hafi meðal ann­ars verið not­aðir til þess að milli­færa um níu millj­arða króna frá félagi á Mars­hall-eyj­u­m.  

Auglýsing
Það félag var ekki með upp­gef­inn raun­veru­legan eig­anda, en ein helsta kvöðin vegna pen­inga­þvætt­is­varna er sú að bankar þurfa að þekkja við­skipta­vini sína og upp­runa fjár­magns­ins sem þeir færa inn á reikn­inga. Banka­reikn­ing­unum sem um ræðir var lokað í fyrra eftir að banda­rískur banki gerði við­vart um að fjár­magns­flutn­ing­arnir stæð­ust lík­ast til ekki skil­yrði sem sett væru vegna pen­inga­þvætt­is­varna.

Kjer­stin Braathen, for­stjóri DNB, sagði við norska við­skipta­blaðið Dag­ens Nær­ingsliv í gær að hún úti­loki ekki að bank­inn hafi verið mis­not­aður í tengslum við mál­ið. Hún líti málið alvar­legum aug­um.

Siv Jen­sen, fjár­mála­ráð­herra Nor­egs, hefur kallað eftir því að DNB leggi öll spil á borðið vegna máls­ins og yfir­maður pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lits DNB sagði upp störfum í haust. DNB hefur opin­ber­lega sagt að það hafi verið vegna skipu­lags­breyt­inga en norskir fjöl­miðlar tengja það við það sem átt hafði sér stað vegna fjár­magnstil­færslna Sam­herja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent