Lífeyrissjóðnum Gildi hefur tekist að hemja útlán sín til íbúðakaupa á þessu ári með þeim árangri að sjóðurinn lánaði sjóðsfélögum aðeins lægri upphæð á fyrstu tíu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Það gerði sjóðurinn með því að þrengja verulega á lánaskilyrðum sínum.
Þetta kom fram i kynningu Árna Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gildis, á fundi sjóðsfélaga og fulltrúaráðs lífeyrissjóðsins sem fram fór á miðvikudag.
Sjóðsfélagalán Gildis, sem eru fyrst og fremst til íbúðarkaupenda, jukust mjög skarpt á undanförnum árum Í árslok 2015 voru þau 2,2 milljarðar króna en höfðu tífaldast um síðustu áramót og voru orðin 22 milljarðar króna. Þar af bættust 9,2 milljarðar króna, eða rétt tæpur helmingur viðbótarinnar, við á árinu 2018. Fjöldi veittra lána jókst líka mjög hratt og fór úr því að vera 230 árið 2015 í að vera 1.366 allt árið í fyrra.
Þessi aðgerð virðist hafa virkað til að koma í veg fyrir áframhaldandi vöxt. Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2019 hefur Gildi lánað 17,2 milljarða króna í sjóðsfélagalán, sem er 200 milljónum krónum minna en sjóðurinn gerði á sama tímabili í fyrra. Auk þess hefur hann veitt 12 færri lán í ár en á sama tímabili í fyrra, eða alls 1.072 talsins.
Lægstu vextir sem Gildi býður nú eru á verðtryggðum breytilegum lánum, en þeir eru 2,46 prósent. Sjö lífeyrissjóðir bjóða sínum sjóðsfélögum upp á betri vexti en það. Lægstu vextirnir sem eru í boði í þeim lánaflokki eru hjá Birtu, 1,64 prósent, en þar er hámarkslánið reyndar 65 prósent af kaupverði.
Verzlunarmenn hafa haldið vöxtum óbreyttum í fjóra mánuði
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, hefur líka gripið til aðgerða til að hamla lántöku hjá sér. Hann hefur nú haldið breytilegum verðtryggðum vöxtum sínum óbreyttum frá því í ágústbyrjun, eða í fjóra mánuði. Þá var ákveðið að breyta því hvernig vextirnir væru ákveðnir og fallið frá því að láta ávöxtun ákveðins skuldabréfaflokks ráða þeirri för. Þess í stað er einfaldlega um ákvörðum stjórnar lífeyrissjóðsins að ræða, en ekki hefur verið greint frá því hvort hún byggi á einhverju öðru en einungis vilja þeirra sem í stjórninni sitja. Frá því í nóvember 2018 og fram í maí 2019 lækkuðu breytilegir verðtryggðir vextir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna úr 2,62 prósent í 2,06 prósent, eða um 0,56 prósentustig. Þá tók stjórn sjóðsins ákvörðun um að frysta þá fram í ágúst og hækka þá svo upp í 2,26 prósent, þar sem þeir hafa verið síðan.
Í október ákvað sjóðurinn svo að breyta lánareglum sínum þannig að skilyrði fyrir lántöku voru verulega þrengd og hámarksfjárhæð lána var lækkuð um tíu milljónir króna. Auk þess var ákveðið að hætta að lána nýjum lántakendum verðtryggð lán á breytilegum vöxtum, en þau hafa verið einna hagkvæmustu lánin sem í boði hafa verið á undanförnum árum.
Þetta var gert með þeim rökum að sjóðurinn væri komin út fyrir þau þolmörk sem hann ræður við að lána til íbúðarkaupa. Frá haustinu 2015 og fram í októberbyrjun 2019 jukust sjóðsfélagslán úr því að vera sex prósent af heildareignum sjóðsins í að verða 13 prósent. Alls námu sjóðsfélagalánin um 107 milljörðum króna í byrjun síðasta mánaðar og um 25 milljarðar króna til viðbótar voru sagðir vera að bætast við þá tölu þegar tekið væri tillit til fyrirliggjandi umsókna um endurfjármögnun.
Það voru einfaldlega ekki til lausir peningar til að halda áfram á sömu braut og lífeyrissjóður verzlunarmanna hefði þurft að losa um aðrar eignir að óbreyttu til að þjónusta eftirspurnina eftir íbúðalánum. Það var stjórn hans ekki tilbúin að gera.
Hægist heilt yfir á útlánum sjóða
Þessar ákvarðanir stærstu sjóðanna, sem eru til þess fallnar að hægja á lántöku hjá þeim, hafa skilað því að ný útlán lífeyrissjóða til sjóðsfélaga, að frádregnum upp- og umframgreiðslum, drógust saman um 15 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins 2019 miðað við sama tímabil í fyrra.
Útlán í septembermánuði voru 12 prósent lægri í ár en í fyrra. Það er þó aukning frá þeirri stöðu sem var uppi í sumar, þegar samdrátturinn var sem mestur. Í júlí, júlí og ágúst 2018 lánuðu lífeyrissjóðirnir alls 29,8 milljarða króna til sjóðsfélaga sinna. Á sama tímabili í ár lánuðu þeir 21,4 milljarða króna.
Útlánin drógust því saman um 28 prósent milli sumra.
Þrátt fyrir að upphæðirnar sem sjóðirnir hafa lánað hafi dregist verulega saman er fjöldi veittra lána á fyrstu níu mánuðum ársins nánast sá sami og hann var á sama tímabili í fyrra, eða 5.765. Það eru einungis 14 færri lán en lífeyrissjóðir landsins veittu á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2018. Meðaltalslánveiting er því að dragast verulega saman. Hún var 13,5 milljónir króna í fyrra en er 11,4 milljónir króna nú, og 16 prósent lægri en á sama tímabili í fyrra.