Segir væntanlegt starfsfólk Play „varla að vita kaup og kjör“

Forseti ASÍ hvetur Play til að birta kjarasamninga sem það hefur gert um störf flugliða. Hún segir að undirboð á vinnumarkaði verði ekki liðin. Play telur sig hafa náð allt að 37 prósent kostnaðarlækkun vegna launa.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Auglýsing

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), hvetur lág­far­gjalda­flug­fé­lagið Play, sem hyggst hefja starf­semi í nán­ustu fram­tíð, til að birta kjara­samn­ing sem það seg­ist hafa gert um störf flug­liða sem það ætlar að ráða. Hún segir fólk sem sækir um störf hjá Play varla fá að vita hver kaup og kjör séu. „Þær vís­bend­ingar sem okkur hafa borist hníga í þá átt að greiða á grunn­laun langt undir því sem almennir kjara­samn­ingar segja til um. Ég hvet fyr­ir­tækið til að birta kjara­samn­ing­inn og leggja allt á borð­ið, ekki aðeins á fólk sem hyggst sækja um störf hjá Play rétt á þess­ari vit­neskju heldur skiptir það okkur öll máli ef verið er að stunda und­ir­boð á vinnu­mark­aði. Ég ætl­ast líka til þess að fjár­festar og þeir sem eiga í við­skiptum við fyr­ir­tækið krefji það um þessar upp­lýs­ing­ar. Það verður ekki liðið að fyr­ir­tæki starfi á íslenskum vinnu­mark­aði með und­ir­boð­u­m.“

Þetta kemur fram í reglu­legum föstu­dag­spistli Drífu sem birtur var í morg­un. 

Auglýsing
Kjarninn greindi frá því 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að stjórn­endur Play telji sig hafa náð 27 til 37 pró­­sent kostn­að­­ar­­lækkun á samn­ingum sínum við flug­­­menn og flug­­liða, miðað við þá samn­inga sem WOW air hafði verið með við þær starfs­­stétt­­ir. Auk þess ætlar flug­­­fé­lagið að ná betri nýt­ingu á áhöfnum sínum með þeim samn­ingum sem félagið hefur gert, en í þeim felst að það náist 800 til 900 klukku­­stunda nýt­ing á hverja áhöfn á ári. Til sam­an­­burðar nái Icelandair 550 klukku­­stunda nýt­ingu út úr sinum áhöfnum að með­­al­tali.

Minna borgað fyrir meiri vinnu

Því liggur fyr­ir, sam­kvæmt þeim töl­um, að starfs­­menn Play munu fá minna borgað en starfs­­menn WOW air fengu og munu vinna mun meira en sam­­bæri­­legir starfs­­menn Icelandair gera. Þetta kom fram í fjár­­­festa­kynn­ingu sem Íslensk verð­bréfa unnu og kynntu fyrir vænt­an­­legum fjár­­­festum í Play í upp­hafi nóv­em­ber­mán­að­ar. Kynn­ing­in, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, er kirfi­­lega merkt trún­­að­­ar­­mál.

Í henni kom fram að stjórn­­endur hins nýja flug­­­fé­lags hafi lagt mikla „vinnu til að lækka alla kostn­að­­ar­liði félags­­ins umfram þau kjör sem Wow air hafði á sínum tíma.“

Auglýsing
Þar sagði enn fremur að þessir samn­ingar hafi þegar náðst við Íslenska flug­­­stétt­­ar­­fé­lag­ið, ÍFF, sem var áður stétt­­ar­­fé­lag flug­­­manna WOW air. Á kynn­ingu sem for­svar­s­­menn Play héldu í upp­hafi mán­aðar kom fram að flug­­­fé­lagið hefði þegar gengið til samn­inga við ÍFF um gerð kjara­­samn­inga við bæði flug­­­menn og flug­­liða. 

Í kynn­ingu Íslenskra verð­bréfa sagði að mikil jákvæðni hefði ríkt beggja megin borðs­ins þegar þessir samn­ingar voru teikn­aðir upp. „Þessir samn­ingar eru sam­­bæri­­legir við það sem flug­­­fé­lög eru að gera t.d. í Dublin og á öðrum hag­­kvæmum flug­­­rekstr­­ar­­stöð­u­m.“

Vand­ræði með fjár­mögnun

Síð­ustu daga hafa fjöl­miðlar greint frá því að illa gangi fyrir stjórn­endur Play að ná í þann 1,7 millj­arð króna sem félagið þarf að sækja í hlutafé til að geta hafið rekst­ur. Við­skipta­hug­myndin á bak­við félagið gengur út á að fá láns­fjár­mögnun frá breska fjár­fest­inga­sjóðnum Athene Capi­tal upp á 40 til 80 millj­ónir evra og safna ofan­greindu hluta­fé. Þeir sem leggja til hluta­féð eiga þá að fá helm­ing hluta­fjár í Play en stofn­end­urn­ir, sem verða lyk­il­stjórn­endur félags­ins, eiga að fá hinn helm­ing­inn án þess að leggja fram fé. Arnar Már Magnússon, forstjóri Play á kynningarfundi félagsins.

Morg­un­blaðið greindi frá því í morgun að for­svars­menn Play reyni nú að kalla saman hóp fjár­festa í íslenskri ferða­þjón­ustu í von um að ná saman þeim 1,7 millj­arði króna sem vantar til að félagið geti fengið flug­rekstr­ar­leyfi og hafið starf­semi. Sá fundur eigi að fara fram í dag eða um helg­ina. Þar sagði einnig að fjár­festar sem Morg­un­blaðið hafði rætt við segðu að stofn­endur Play þyrftu að slá af kröfum sínum um að fá 50 pró­sent í félag­inu ef fjár­mögn­unin ætti að ganga eft­ir. 

Kjarn­inn hefur áður greint frá því að áætl­anir Play geri ráð fyrir mjög hröðum vexti og að félagið verði um 630 milljón dala virði í lok árs 2022, eða um 78 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar er mark­aðsvirði Icelandair nú rétt undir 40 millj­örðum króna. Fjár­festar sem Kjarn­inn hefur rætt við telja að þessi áform séu helst til of bjart­sýn, enda fel­ast í þeim að fjár­festar eigi að geta 12 til 13 faldað fjár­fest­ingu sína á innan við þremur árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent