Héraðssaksóknari nær ekki að óbreyttu að sinna málum sem bíða rannsóknar

Alls bíða um 100 mál rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Þar af eru um 60 skattamál. Núverandi starfsmannafjöldi dugar ekki til að sinna þeim rannsóknarverkefnum. Hann vantar fleiri starfsmenn til að geta sinnt fleiri stórum rannsóknarverkefnum.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari.
Auglýsing

Um hund­rað mál eru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem er umtals­vert meira en er að jafn­aði, þegar þau eru á bil­inu 50 til 70. Af þeim 100 málum sem bíða rann­sóknar eru um 60 skatta­mál. Núver­andi starfs­manna­fjöldi emb­ætt­is­ins dugar ekki til að sinna öllum þeim rann­sókn­ar­verk­efnum sem það þarf að takast á við. 

Vegna þessa hefur Ólafur Þór Hauks­son hér­aðs­sak­sókn­ari lagt til að starfs­mönnum á rann­sókn­ar­sviði emb­ættis hans verði fjölgað um sex í byrjun árs 2020. Hann leggur auk þess til að starfs­mönnum verði mögu­lega fjölgað um tvo til við­bótar síðar á árinu ef verk­efna­staða emb­ætt­is­ins gefur til­efni til. 

Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem Ólafur hefur sent dóms­mála­ráðu­neyt­inu og RÚV greinir frá í dag. Með­al­kostn­aður fyrir hvert starf sem við bæt­ist er áætl­aður 15 millj­ónir króna og því myndi fyrsta aukn­ingin kosta um 90 millj­ónir króna. 

Auglýsing
Í frétt RÚV segir að til­efni minn­is­blaðs­ins sé umræðan um mál Sam­herja og áhrif þess á verk­efn­is­stöðu emb­ætt­is­ins, en rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum 19. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að huga sér­stak­lega að fjár­mögnun rann­sóknar hér­aðs­sak­sókn­ara í tengslum við rann­sókn emb­ætt­is­ins á Sam­herj­a­mál­in­u. 

Einnig fjallað um aukin umsvif vegna fjár­mála­grein­inga

Í minn­is­blað­inu er einnig fjallað um aukið álag vegna auk­inna umsvifa skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu, en hún hét áður pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa og var færð frá rík­is­lög­reglu­stjóra yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara sum­arið 2015. Þá starf­aði einn maður á skrif­stof­unni.

Í kjöl­far þess að alþjóð­legu sam­tökin Fin­ancial Act­ion Task Force (FATF) gáfu pen­inga­þvætt­is­vörnum Íslands fall­ein­kunn í úttekt sem var birt í apríl 2018 var ráð­ist í miklar umbættur á starf­semi hennar og starfs­fólki fjölgað til muna. Fjár­­munir hafa verið settir í að kaupa upp­­lýs­inga­­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­­semi innan bank­anna sjálfra hefur verið eflt. Inn­­­leið­ing þess kerfis er þó ekki að fullu til­­­bú­in og ekki er búist við því að hún klárist fyrr en á næsta ári. Þrátt fyrir að gripið hafi verið til þess að styrkja skrif­stof­una, og ann­arra marg­hátt­aðra ráð­staf­ana til að bregð­ast við aðfinnslum FATF, end­aði Ísland á gráum lista sam­tak­ana yfir ríki sem eru ekki búin að gera nóg til að verja sig fyrir pen­inga­þvætti.

Í minn­is­blað­inu bendir Ólafur á að fjölgun starfs­manna og efl­ing skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu hafi leitt til fleiri grein­inga þaðan til rann­sókn­ar­sviðs emb­ætt­is­ins sem þurfi að rann­saka. Taka þurfti til­lit til þess við fjár­veit­ing­ar. 

Það bendir til þess að aukið eft­ir­lit með pen­inga­þvætti hafi þegar skilað því að emb­ætti hérðassak­sókn­ara sé að rann­saka fleiri slík mál en áður, þegar eft­ir­litið var í mol­u­m. 

Gátu ekki klárað hrun­rann­sóknir

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem emb­ættið hefur verið í þeirri stöðu að geta ekki sinnt rann­sóknum í málum þar sem grunur leikur á um refsi­verða hátt­semi.

Í októ­ber 2018 sagði Ólafur í við­tali á Hring­braut að nið­­ur­­skurð­­ur­inn sem emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara, sem síðar var breytt í emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, var lát­inn sæta árið 2013, upp á 774 millj­­ónir króna, hafi gert það að verkum að ekki var hægt að klára rann­­sókn á sumum málum tengdum hrun­inu. „Auð­vitað voru þarna nokkur mál sem við hefðum viljað fara betur ofan í sem við höfðum ekki „reso­­urce-a“ til að taka.“ 

Auglýsing
Ólafur sagði þá að um 200 mál hefðu komið inn á borð emb­ætt­is­ins tengd hrun­inu. Af þeim hafi mörg verið sam­einuð og á end­­anum fóru 35 í ákæru­­ferli. 

Aðspurður um þau mál sem röt­uðu ekki í ákæru­­ferli sagði Ólafur að þar væru fyrst og fremst um mál að ræða sem emb­ættið taldi að myndu ekki ná inn í dóm. „Ann­­ars vegar var þá hætt rann­­sókn eða þá mál voru full­­kláruð og svo tekið mat á því hvort þau stæð­ust sönn­un­­ar­­lega séð. Hvort það væru meiri lík­­indi en minni að það yrði sak­­fellt í þeim. Í nokkrum til­­vikum var það þannig að það þótti ekki vera. Síðan í rest­ina voru farin að koma inn frek­­ari sjón­­­ar­mið eins og til dæmis tíma­­lengd­in, hvað þetta var búið að taka langan tíma. Þar kom inn í að við erum skorin svo­­lítið hressi­­lega niður strax á árinu 2013, sem gerir það að verkum að sumt að því sem við vorum með það náði ekki fram.“

Þegar Ólafur var spurður um það í þætt­inum hvernig það stæð­ist jafn­­ræð­is­­sjón­­ar­mið að sumir ein­stak­l­ingar slyppu við ákæru, og mög­u­­lega dóm, vegna þess að rann­­sókn á málum þeirra hefði tekið lengri tíma en hjá öðrum eða vegna þess að emb­ætt­inu skorti fjár­­­magn, svar­aði hann því til að það væri eðli­­legt að velta þeirri spurn­ingu upp. „En í mjög mörgum til­­vikum var um að ræða mál sem beindust að sömu aðilum og áður höfðu fengið dóma og jafn­­vel voru komnir með full­nýtta refsiramma, upp í sex ár. Þannig að það var í lang­flestum til­­vikum um slíkt að ræða.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent