Skeljungur hf. hefur gengið að samkomulagi við starfsfólk sitt vegna styttingu vinnuvikunnar eins og samið var um í síðustu kjarasamningum félagsmanna VR. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
„Lagt var af stað með að starfsmaðurinn yrði þess áskynja að vinnuvikan styttist. Samkomulag hefur því náðst á milli Skeljungs og þeirra starfsmanna sem eru í VR að vinnutími þeirra styttist um 45 mínútur á föstudögum,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir enn fremur að þetta samkomulag nái til 1/3 starfsmanna félagsins. Til þess að hægt sé að verða við því muni Skeljungur breyta opnunartíma sínum í þjónustuverinu og mun það loka klukkan 15:15 á föstudögum frá og með 1. janúar næstkomandi.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, segir við tilefnið að fyrirtækið leitist stöðugt eftir að bjóða starfsfólki gott starfsumhverfi sem og gott jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. „Við fögnum því að hafa fundið lausn sem mun auka vægi þessa mikilvæga þáttar í starfsmannastefnunni okkar.“