Styrmir kosinn formaður Félags sjálfstæðismanna

Tilgangur nýs félags er að „efla samhug sjálfstæðismanna um fullveldið með því að halda til haga og verja, með fræðslu og upplýsingu, þau grunngildi Sjálfstæðisflokksins um frjálsa og fullvalda þjóð.“

Styrmir Gunnarsson
Styrmir Gunnarsson
Auglýsing

Félag sjálf­stæð­is­manna var stofnað í gær um full­veld­is­mál í Val­höll í Reykja­vík. Stofn­fund­inn sóttu um 80 manns. Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, var kos­inn for­maður hins nýja félags með öllum greiddum atkvæð­um.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu.

Til­gangur félags­ins er að „efla sam­hug sjálf­stæð­is­manna um full­veldið með því að halda til haga og verja, með fræðslu og upp­lýs­ingu, þau grunn­gildi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um frjálsa og full­valda þjóð,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Þá kemur fram að margir sjálf­stæð­is­menn telji fulla þörf á auk­inni umræðu og fræðslu um full­veld­is­mál íslensku þjóð­ar­innar ekki síst í ljósi þeirra deilu sem varð um inn­leið­ingu 3. orku­pakka ESB í íslensk lög.

„Eftir þá óein­ingu sem orku­pakka­málið olli bæði í Sjálf­stæð­is­flokknum og þjóð­fé­lag­inu öllu telja félags­menn nauð­syn­legt að ræða fram­tíð­ar­stöðu mála­flokks­ins og hversu langt eigi að ganga í því að inn­leiða hér orku­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins.“

Á fund­inum fluttu stutt ávörp þeir Jón Gunn­ars­son rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­mað­ur, Ásmundur Frið­riks­son þing­mað­ur, Viðar Guðjohn­sen jr, lyfja­fræð­ing­ur, Jónas Elí­as­son pró­fessor og Styrmir Gunn­ars­son fyrr­ver­andi rit­stjóri, en hann var ein­róma kjör­inn for­maður félags­ins, eins og áður seg­ir. Í lok fund­ar­ins flutti Séra Krist­inn Ágúst Frið­finns­son jóla­hug­vekju og fund­ar­menn sungu nokkur jóla­lög undir stjórn Eyþórs Arn­alds.

Þá kemur enn fremur fram hjá félag­inu að eitt af mark­miðum með stofnun þess sé að halda til haga, með fræðslu og upp­lýs­ingu, merkum þáttum í sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem tengj­ast full­veld­is­bar­áttu þjóð­ar­inn­ar, svo sem stofnun lýð­veld­is, varn­ar­sam­starfi frjálsra þjóða og bar­átt­unni um yfir­ráð yfir auð­lindum hafs­ins. „Slík fræðsla er afar mik­il­væg, ekki síst fyrir ungt fólk. Þá er ætl­unin að efna til opinna skoð­ana­skipta um aðra helstu auð­lind þjóð­ar­inn­ar, sem er orka fall­vatn­anna og jarð­varmans. Að fengnu sam­þykki Mið­stjórnar flokks­ins fyrir þess­ari félags­stofnun mun verða efnt til mál­þings og fund­ar­halda þar sem þetta mál­efni verður rætt frá öllum hlið­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent