Sýknað og refsing milduð í Glitnismáli

Löng málsmeðferð leiddi til þess að refsing var skilorðsbundin. Tveir af fimm áfrýjuðu fyrri niðurstöðu til Landsréttar.

Landsréttur
Auglýsing

Lands­réttur mild­aði í dag dóm yfir Jóhann­esi Bald­urs­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra mark­aðsvið­skipta Glitnis og sýkn­aði Pétur Jón­as­son, sem starf­aði á sviði eigin við­skipta. 

Ástæðan fyrir mildun refs­ingar fyrir Jóhann­es, sem var skil­orðs­bundin að öllu leyti, var meðal ann­ars óhóf­legur dráttur á máls­með­ferð ástæðan fyrir því. Í hér­aði hafði Jóhannes fengið 12 mán­aða fang­els­ins­dóm, ofan á 5 ára dóm hann hafði hlotið áður. 

Pétur hafði fengið sex mán­aða dóm, fyrir sinn þátt í mál­inu, en var sýkn­að­ur, eins og áður seg­ir. 

Auglýsing

Í hér­aði voru allir sak­born­ing­arnir í upp­haf­lega mál­inu, Lárus Weld­ing fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans, Jóhann­es, og þrír fyrr­ver­andi miðl­ar­ar, Jónas Guð­munds­son, Val­garð Val­garðs­son og fyrr­nefndur Pét­ur, sak­felld­ir. 

Í Lands­rétti var hins vegar aðeins fjallað um mál Jóhann­esar og Pét­urs, en þeir voru þeir einu sem áfrýj­uðu mál­in­u. 

Í dómi Lands­réttar er fjallað um drátt á máls­með­ferð, og sagt að ekki hafi komið fram skýr­ingar á því hvers vegna þessi dráttur á máls­með­ferð varð. „Tæp­­lega níu ár eru síðan Fjár­­­mála­eft­ir­litið kærði brot ákærða til sér­­staks sak­­sókn­­ara. Þá hef­ur ákæru­­valdið ekki getað gefið skýr­ingu á því af hverju tæp fimm ár liðu frá því að kær­an barst til sér­­staks sak­­sókn­­ara þar til ákæra í mál­inu var gef­in út. Inn­­an við hálft ár leið frá kæru Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins í sam­­bæri­­legu máli vegna Lands­­banka Íslands hf. og kæru Fjár­­­mál­eft­ir­lits­ins í þessu máli. Þrátt fyr­ir það liðu þrjú ár frá því að ákæra var gef­in út í fyrr­­greinda mál­inu þar til ákæra var gef­in út í þessu máli. Kom raun­ar ekki til út­­gáfu ákæru í þessu máli fyrr en máli vegna Lands­­banka Íslands hf. hafði lokið með dómi Hæsta­rétt­­ar. Með hliðsjón af hinum miklu og óút­­­skýrðu töf­um er óhjá­­kvæmi­­legt að binda refs­ing­una skil­orði svo sem í dóms­orði grein­ir,“ segir í dómnum



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent