Vöruviðskipti voru óhagstæð um 3,1 milljarð í nóvember, en á sama tíma í fyrra voru þau óhagstæð um 18,8 milljarða, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Ástæðan fyrir þessari miklu breytingu milli ára liggur í mun minni innflutningi en áður.
Samkvæmt bráðabirgðatölum nam verðmæti vöruútflutnings 52,1 milljarði króna í nóvember og verðmæti vöruinnflutnings 55,2 milljörðum króna.
Í nóvember 2019 var verðmæti vöruútflutnings 1,7 milljörðum króna lægra en í nóvember 2018, eða 3,1 prósent á gengi hvors árs. Minni viðskipti voru með iðnaðarvörur en á móti koma aukin viðskipti með landbúnaðarvörur.
Verðmæti vöruinnflutnings í nóvember 2019 var 17,4 milljörðum króna lægra en í nóvember 2018, eða 23,9% á gengi hvors árs. Mest var lækkunin í viðskiptum með hrá- og rekstrarvörur og eldsneyti.