Vilja að Samherji skili peningunum til namibísku þjóðarinnar

Samfélag Namibíumanna í Bandaríkjunum gera verulega athugasemd við ummæli Bjarna Benediktssonar um hver ástæðan fyrir Samherjamálinu sé. Þau vilja að Ísland biðji Namibíu afsökunar og að Samherji skili peningum til namibísku þjóðarinnar.

Samfélag Namibíumanna í Bandaríkjunum afhendir sendiherra Íslands þar í landi yfirlýsingu sína.
Samfélag Namibíumanna í Bandaríkjunum afhendir sendiherra Íslands þar í landi yfirlýsingu sína.
Auglýsing

Sam­fé­lag Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum vilja að íslensk stjórn­völd biðji namibísku þjóð­ina afsök­unar vegna Sam­herj­a­máls­ins og að þau láti Sam­herja „skila pen­ing­unum til namibísku þjóð­ar­inn­ar.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hóp­ur­inn afhenti Berg­dísi Ell­erts­dótt­ur, sendi­herra Íslands í Was­hington, fyrr í dag. Greint er frá fund­inum og yfir­lýs­ing­unni á face­book-­síðu sam­fé­lags Namib­íu­manna í Banda­ríkj­un­um.

#Fis­hrot corr­uption scandal being fought from Was­hington, DC, USA. This effort is spe­ar­hea­ded by a Namibi­an,...

Posted by Namibian Comm­unity USA on Fri­day, Decem­ber 6, 2019

Í yfir­lýs­ing­unni segir að hóp­ur­inn viti til þess að margir, sér­stak­lega Vest­ur­-­Evr­ópu­menn, haldi að spill­ing sé við­tekin venja í Afr­íku og sé jafn­vel í erfða­efni þeirra þjóða sem sé að finna í álf­unni. Síðan er vitnað í ummæli Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í frétt á vef Guar­dian nokkrum dögum eftir að Sam­herj­a­málið var opin­berað þar sem haft var eftir Bjarna að spilltum stjórn­völdum í Namibíu sé hugs­an­lega um málið að kenna. „Veik rík­is­stjórn, spillt rík­is­stjórn í þessu landi. Sem virð­ist vera und­ir­liggj­andi vanda­mál sem við sjáum nún­a.“ 

Hóp­ur­inn seg­ist ekki vera sam­mála þess­ari full­yrð­ingu og hann hafi komið á fund sendi­herr­ans til að koma því á fram­færi. Namibíska þjóðin sé þvert á móti harð­dug­leg. Flestir lands­menn lifi þó í mik­illi fátækt og njóti ekki ávaxta af spilltum gjörðum fámenns hóps í land­in­u. 

Í yfir­lýs­ing­unni sam­fé­lags Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum segir að Sam­herji hafi ekki greitt skatta í Namibíu heldur þess í stað mútað sex ein­stak­lingum til að kom­ast að kvóta og svo haldið eftir hagn­að­inum fyrir sig sjálfa og Ísland. Spillt fram­ferði Sam­herja hafi rænt namibísku þjóð­inni tæki­fær­inu af því að njóta afrakst­urs af nýt­ingu nátt­úru­auð­linda í land­inu.

Auglýsing
Vegna þessa eigi Ísland að neyða Sam­herja til að greiða bætur til namibísku þjóð­ar­innar og biðja hana svo afsök­un­ar. 

Mút­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­ganga

Kveikur og Stundin greindu frá því í nóv­em­ber að ­Sam­herji lægi undir grun um að hafa greitt mútur til að tryggja aðgengi að ódýrum kvóta í Namib­íu. Auk þess hefur er grunur um að Sam­herji hafi stundað umfangs­­mikið pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu. Málið byggir á frá­sögn upp­ljóstr­ar­ans Jóhann­esar Stef­áns­son­ar, sem starf­aði hjá Sam­herja í Namibíu og hefur sjálfur við­ur­kennt að hafa tekið þátt í umfangs­miklum lög­brotum fyr­ir­tæk­is­ins, og gríð­ar­legu magni af gögnum sem hann lét Wiki­leaks í té. Þau gögn eru nú aðgengi­leg á inter­net­inu. Al Jazeera sjón­varps­stöðin tók einnig þátt í opin­ber­un­inni og birti sinn hluta hennar í síð­ustu viku. 

Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ráð­herra Namib­­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­mála­ráð­herra Namib­­íu, og fjórir aðrir menn voru nýverið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­ónir namibískra doll­­ara, jafn­­virði 860 millj­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­sóttan kvóta í land­in­u. 

Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­ar­­for­­maður namibísku rík­­is­út­­­gerð­­ar­innar Fis­hcor nýver­ið, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­sonur Esau, Ricardo Gusta­vo, sam­­starfs­­maður hans og Pius Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­­skyld­u­­bönd­um, ákærð­ir. 

Sam­herj­a­málið er einnig til rann­sóknar í Nor­egi, þar sem fyr­ir­tækið hefur verið í banka­við­skiptum við DNB, og á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent