Elín Hirst sækist eftir stöðu útvarpsstjóra

Elín hefur áratugareynslu af fjömiðlastörfum, og var um tíma þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

elinhirst.jpeg
Auglýsing

Elín Hir­st, sem starfað hefur við fjöl­miðla í ára­tugi og var um tíma þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur til­kynnt um það á Face­book síðu sinni, að hún sæk­ist eftir stöðu útvarps­stjóra. Þá hafa tveir umsækj­endur til­kynnt um umsókn sína. Auk Elínar hefur Stein­unn Ólína Þor­steins­dóttir einnig gert það. 

Magnús Geir Þórð­ar­son hætti nýverið sem útvarps­stjóri, og tók við sem Þjóð­leik­hús­stjóri. Stjórn RÚV setti þá í gangi umsókn­ar­fer­il, og lengdi umsókn­ar­frest til dags­ins í dag, 9. des­em­ber. Ekki liggur fyrir hvort stjórn RÚV muni birta lista allra umsækj­enda, en á fyrri stigum var ákveðið að gera það ekki. 

Elín kláraði stúd­ents­próf MH 1979. Grunn­fags­próf í þjóð­hag­fræði frá Ósló­ar­há­skóla 1981. BS-­próf í frétta- og blaða­mennsku frá Uni­versity of Flori­da, Gains­ville 1984. MA-­próf í sagn­fræði HÍ 2005.

Auglýsing

Hún var Alþing­is­maður fyrir Sjá­fl­stæð­is­flokk­inn, á árunum 2013 til 2016.

Hún hóf feril í blaða­mennsku fyrir 35 árum. Var blaða­maður á DV 1984–1986. Frétta­maður á Bylgj­unni 1986–1988. Frétta­maður á Stöð 2 1988–1993, frétta­þulur 1990–1996. Vara­f­rétta­stjóri Stöðvar 2 og Bylgj­unnar 1993–1994, frétta­stjóri 1994–1996. Nefnd­ar­maður í úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál 1997–2004. Frétta­maður Sjón­varps­ins 1998–2001, frétta­þulur Sjón­varps­ins 1998–2010. Frétta­stjóri Sjón­varps­ins 2002–2008. Dag­skrár­gerð­ar­maður hjá RÚV 2008–2010.

Þá var Elín í stjórn Heimdall­ar, félags ungra sjálf­stæð­is­manna, 1984. 

Í stjórn Íslands­deildar UNESCO 2002–2004. Í stjórn Tón­list­ar­fé­lags Reykja­víkur og í stjórn Þjóð­rækn­is­fé­lags Íslands síðan 2011. For­maður stjórnar mennt­un­ar­sjóðs Mæðra­styrks­nefndar 2012–2013. For­maður stjórnar Leið­ar­ljóss, stuðn­ings­mið­stöðvar fyrir börn með sjald­gæfa, alvar­lega, ólækn­andi sjúk­dóma, síðan 2012. Í stjórn Græn­lands­sjóðs 2013–2017.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent