Segir brottvísun óléttrar konu í samræmi við áherslur um mannúðlega meðferð

Dómsmálaráðherra segir að hún meti sem svo að brottvísun albanskrar konu, sem var gengin 36 vikur, hafi verið í samræmi við markmið og áherslur.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Auglýsing



Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Helgu Völu Helga­dótt­ur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, að nýleg brott­vísun óléttrar albanskrar konu, sem var gengin 36 vik­ur,  hafi verið í sam­ræmi við áherslur stjórn­valda um mann­úð­lega með­ferð. 

Í svar­inu segir orð­rétt: „Að mati dóms­mála­ráð­herra var umrædd fram­kvæmd í sam­ræmi við mark­mið laga um útlend­inga[...], verk­lag Útlend­inga­stofn­unar og stoð­deildar emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra og áherslur stjórn­valda um mann­úð­lega og skil­virka með­ferð í mál­efnum útlend­inga hér á land­i.“

Auglýsing
Helga Vala spurði ráð­herr­ann einnig um það hver hefði tekið ákvörðun um brott­vís­un­ina. Í svari Áslaugar segir að konar hafi komið hingað til lands ásamt manni sínum og barni og sótt um alþjóð­lega vernd í byrjun októ­ber. „Málið var sett í for­gangs­með­ferð af Útlend­inga­stofnun og afgreitt með ákvörðun 11. októ­ber þar sem umsókn hennar var synj­að. Í fram­hald­inu var mál­inu vísað til stoð­deildar emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra sem ber ábyrgð á því að fram­kvæma ákvarð­anir um flutn­ing umsækj­enda til síns heima.“

Var vísað úr landi með lög­reglu­valdi

Mál albönsku fjöl­­skyld­unnar komst í hámæli í 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar það birt­ist færsla á Face­book-­­­síðu Réttur barna á flótta þar sem kom fram að henni hefði verið vísað úr landi um klukkan 18 þann sama dag þrátt fyrir að vera í miðju mála­­­ferli við Útlend­inga­­­stofn­un. Þeim var vísað frá Íslandi með lög­­­reglu­­valdi.Konan var gengin 36 vikur á leið. Mynd: Solaris

Þeim var svo vísað frá Íslandi með lög­­­reglu­­valdi þrátt fyrir að konan væri gengin 36 vikur á leið með annað barn þeirra og hefði þurft að fara í bráða­keis­ara­skurð þegar það fyrra fædd­ist. 

Flogið var með fjöl­­skyld­una til Berlín og þaðan áfram til Alban­­íu. Ferða­lagið tók 19 tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent