Svanhildur hefur verið aðstoðarmaður Bjarna frá árinu 2012. Hún var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins í þrjú ár þar á undan en starfaði einnig um árabil sem fjölmiðlamaður, meðal annars í Kastljósi og sem þáttastjórnandi í Íslandi í dag á Stöð 2.
Starfið var auglýst eftir að Magnús Geir Þórðarson sagði starfi sínu lausu, en hann var skipaður þjóðleikhússtjóri frá og með 1. janúar næstkomandi. Magnús Geir hafði gegnt stöðu útvarpsstjóra frá árinu 2014.
Upphaflegur umsóknarfrestur rann út 2. desember en ákveðið var að framlengja hann um viku, eða til 9. desember.
Í tilkynningu frá stjórn RÚV sem send var út fyrr í dag kemur fram að stjórnin ráði útvarpsstjóra og að á næstu vikum verði farið yfir umsóknir. Stjórnin hafi jafnframt fengið ráðningafyrirtækið Capacent til að hafa umsjón með því verkefni. Stjórn RÚV stefni að því að ganga frá ráðningu nýs útvarpsstjóra í lok janúar 2020.