Fimm eru metin mjög vel hæf, í mati hæfisnefndar á umsækjendum um stöðu varaseðlabankastjóra á sviði fjármálastöðugleika.
Það eru Guðrún Johnsen, Jón Þór Sturluson, Tómas Brynjólfsson, Gunnar Jakobsson og Yngvi Örn Kristinsson, samkvæmt heimildum Kjarnans. Ásdís Kristjánsdóttir var metin vel hæf líkt og Óttar Guðjónsson.
Arnar Bjarnason og Kristrún Heimisdóttir voru metin hæf, í mati hæfisnefndar, samkvæmt heimildum Kjarnans.
Athugasemdafrestur umsækjenda var gefinn til 13. desember, en nefndina skipa, auk Vilhjálms Egilssonar, rektors á Bifröst og formanns nefndarinnar, Ásta Dís Óladóttir, lektor við Háskóla Íslands, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins, og Jacqueline Clare Mallet, lektor við Háskólann í Reykjavík, tilnefnd af bankaráði Seðlabanka Íslands.
Umsækjendur um starfið voru upphaflega 10, en einn umsækjenda, Haukur C. Benediktsson, var í millitíðinni ráðinn framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands.
Þau tíu sem sóttu um starfið, voru:
Arnar Bjarnason, lektor og framkvæmdastjóri
Ásdís Kristjánsdóttir, aðalhagfræðingur og forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins
Guðrún Johnsen, hagfræðingur
Gunnar Jakobsson, lögfræðingur
Haukur C. Benediktsson, hagfræðingur
Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins
Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga
Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja
Aðrir varaseðlabankastjórar eru Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir, en seðlabankastjóri er Ásgeir Jónsson.
Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, skipar í stöðuna samkvæmt lögum.