Íslandi gert að breyta skilyrðum um búsetu framkvæmdastjóra og stjórnarmanna

Samkvæmt Eftirlitsstofnun EFTA þarf Ísland að breyta reglum sem skylda stjórnarmenn og framkvæmdastjórn félaga til þess að vera ríkisborgarar eða búsettir í EES ríki.

Viðskipti London 4. ágúst 2017
Auglýsing

Ísland þarf að breyta reglum sem skylda stjórn­ar­menn og fram­kvæmda­stjórn félaga til þess að vera rík­is­borg­arar eða búsettir í EES ríki. Þetta er nið­ur­staða rök­studds álits Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) sem birt var í dag.

Ísland gerir þá kröfu að fram­kvæmda­stjórar og stjórn­ar­menn félaga með stað­festu á Íslandi þurfi að vera rík­is­borg­arar EES ríkis eða búsettir þar. Sam­kvæmt ESA tak­markar Ísland með þessu frelsi félaga ann­arra EES ríkja til þess að ákvarða með frjálsum hætti hvernig stjórn þeirra skuli vera skip­uð. Þetta geti þvingað fyr­ir­tæki til þess að breyta núver­andi sam­setn­ingu fram­kvæmda­stjórnar eða stjórnar þess.

Í til­kynn­ingu frá ESA kemur fram að á grund­velli við­ur­kenndrar dóma­fram­kvæmdar og samn­ings­brota­máls um sama efni sem áður var til með­ferðar telji ESA þessi skil­yrði brjóta gegn grund­vall­ar­reglum EES-réttar um stað­festu­rétt.

Auglýsing

Skil­yrðin skapa tak­mark­anir fyrir félög

Þá kemur fram hjá ESA að þessi skil­yrði skapi einnig tak­mark­anir fyrir félög ann­arra EES-­ríkja sem vilja hefja starf­semi á Íslandi í gegnum skrif­stof­ur, útibú eða dótt­ur­fé­lög, enda geti þau ekki valið stjórn með frjálsum hætti og skipað þá ein­stak­linga sem þau helst kjósa sér.

„Rík­is­borg­ara­réttur og búsetu­skil­yrði eru almennt ekki við­eig­andi gildi til þess að meta hæfi og getu fram­kvæmda­stjórnar og stjórn­ar­manna. Af þeirri ástæðu eru til staðar strangar reglur innan EES-réttar ásamt athug­unum fyrir slíka ein­stak­linga í við­kvæmum geirum líkt og fjár­mála­geir­an­um,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Ísland þarf að upp­fylla samn­ings­skuld­bind­ingar sínar innan 2 mán­aða

Enn fremur kemur fram hjá ESA að stofn­unin hafi sent Íslandi form­legt áminn­ing­ar­bréf um ofan­greint í nóv­em­ber 2015 og í dag sé næsta skrefið tekið í með­ferð samn­ings­brota­máls með því að senda frá sér rök­stutt álit. 

Loks geti ESA vísað mál­inu til EFTA-­dóm­stóls­ins ef Ísland upp­fylli ekki samn­ings­skuld­bind­ingar sínar innan tveggja mán­aða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent