TM ætlar að verða banki

Tryggingafélagið TM ætlar sér að skora stóru bankanna þrjá á hólm með því að hefja bankarekstur. Ekki verður stefnt að því að stofna alhliða banka heldur finna syllu á markaðnum.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.
Auglýsing

Trygg­inga­fé­lagið TM von­ast til þess að fá við­skipta­banka­leyfi næsta sum­ar. Kaup félags­ins á fjár­mögn­un­ar­fé­lag­inu Lykli, sem mun rúm­lega tvö­falda efna­hag TM, eru liður í þeirri veg­ferð að breikka rekstr­ar­grunn félags­ins og væra hann nær banka­starf­semi. Þetta kemur fram í við­tali við Sig­urð Við­ars­son, for­stjóra TM, í Mark­að­unum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti og efna­hags­mál, í dag.

Þar segir Sig­urður að TM hafi áhuga á að koma á fót banka sem skori stóru bank­anna á hólm. „Sá banki væri ekki með þung­lama­lega yfir­bygg­ingu eða for­tíð­ar­vanda á borð við gömul tölvu­kerfi, eins og stóru bank­arnir þrír. Það er lúxus að geta byrjað frá grunn­i.“

Hann segir við Mark­að­inn að hann hafi ekki áhuga á að stofna alhliða banka heldur að TM muni finna sína syllu á mark­aðn­um. „Til við­bótar við þá þjón­ustu sem Lyk­ill býð­ur, sem er að stærstum hluta fjár­mögnun bíla og atvinnu­tækja, munum við byrja á að bjóða inn­lán.“

Auglýsing
Nú stendur yfir hluta­fjár­aukn­ing í TM þar sem félagið er að selja nýja hluti í sér fyrir um þrjá millj­arða króna. Þeir fjár­munir fara í að greiða fyrir Lykil en meg­in­þorri þess kaup­verðs, sem er 9,25 millj­arðar króna, verður greitt með hand­bæru fé TM. 

Með kaupum TM á Lykli verður til félag með heild­­ar­­eignir yfir 80 millj­­örðum króna, og fjár­­­mögnun - þ.e. útlán og leig­u­­samn­ingar - verður stór hluti starf­­sem­inn­­ar. Þannig má segja að kaup TM séu hluti af hag­ræð­ingu á fjár­­­mála- og trygg­inga­mark­aði, þar sem fyr­ir­tæki stækka og sam­einast, til að auka arð­­semi.

Í við­tal­inu við Mark­að­inn segir Sig­urður að þetta skref sé meðal ann­ars stigið til að bregð­ast við fyr­ir­sjá­an­legum sam­drætti á trygg­inga­mark­aði. Bíla­trygg­ingar séu umfangs­mesta var­ann á þeim mark­aði og það megi búast við að iðgjöld vegna þeirra drag­ist saman í nán­ustu fram­tíð með til­komu sjálf­keyr­andi bíla þar sem slíkir muni að öllum lík­indum lenda í mun fleiri óhöpp­um. 

Stærsti eig­andi TM er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir með tæp­lega tíu pró­sent eign­ar­hlut en svo koma þrír stórir líf­eyr­is­sjóð­ir: Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, Birta og LSR með sam­an­lagt tæp­lega þriðj­ungs­hlut. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent