Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 3 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.
Samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum var hagvöxtur 0,2 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er aðeins meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í nóvember en í meginatriðum hefur efnahagsþróunin það sem af er ári verið í samræmi við nóvemberspá bankans.
Verðbólga mældist 2,7 prósent í nóvember og hefur, eins og undirliggjandi verðbólga, hjaðnað milli mánaða. Í tilkynningu bankans segir að verðbólguhorfur hafi lítið breyst frá síðasta fundi nefndarinnar og verðbólguvæntingar eru við markmið miðað við flesta mælikvarða. Taumhald peningastefnunnar hefur því lítið breyst milli funda.
Þá segir bankinn að peningastefnan muni á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.