Í dag var haldinn sérstakur fundur þjóðaröryggisráðs vegna hinna fordæmalausu aðstæðna sem upp hafa komið í framhaldi af ofsaveðri undanfarna daga.
Gestir fundarins voru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðmála, -iðnaðar og nýsköpunarráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ásamt ráðuneytisstjórum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Þá var fulltrúum almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra boðið til fundarins ásamt fulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Rauða kross Íslands og gerðu þeir grein fyrir stöðu mála, hver á sínu sviði, og samvinnu fjölmargra aðila um land allt.
Á fundinum var farið yfir afleiðingar veðursins, stöðu mála og næstu skref. „Ljóst er að miklar truflanir og bilanir hafa valdið rafmagnsleysi víða á Norðurlandi. Fjarskipti liggja niðri víða á sama svæði. Um fordæmalaust ástand er að ræða að þessu leyti og því þótti ráðlegt að boða þjóðaröryggisráð saman og fara yfir stöðuna sbr. 2. mgr. 6.gr. laga um þjóðaröryggisráð. Þess er vænst að viðgerðir á flutningskerfi muni taka nokkra daga,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
800 björgunarsveitarmenn að störfum
Staða mála verður rædd enn frekar á vettvangi ríkisstjórnarinnar á morgun þar sem fjallað verður um nauðsynlegar aðgerðir til skemmri og lengri tíma litið, segir í tilkynningu.
Um 800 björgunarsveitarmenn hafa verið við störf undanfarna daga vegna óveðursins, samkvæmt upplýsingum úr stöðuskýrslu almannavarna frá því í dag. Þar af hafa 224 komið að leit að pilti í Sölvadal, sem féll í Núpá þegar hann var að vinna við stíflu í ánni.