Einn hluti samkomulags, sem formenn þingflokkanna og forseti Alþingis hafa gert sín á milli, snýr að því að bæta verklag til framtíðar varðandi afgreiðslu þingmannamála. Þingflokksformenn munu samkvæmt samkomulaginu hitta forseta Alþingis í janúar næstkomandi og fara yfir stöðuna. Þau munu enn fremur hittast með reglubundnum hætti eftir það.
Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, segir í samtali við Kjarnann það vera í sjálfu sér áhugavert að minnihlutinn hafi þurft að knýja bætt verklag fram í þessari samningalotu. „Vonandi er þetta upphafið af þeim bættu vinnubrögðum sem ríkisstjórnin hefur verið að lofa,“ segir hún.
Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að þingflokksformennirnir hefðu komist að samkomulagi um þinglok en samkvæmt starfsáætlun þingsins átti síðasti þingfundur fyrir jólafrí að vera í dag. Það náði þó ekki fram að ganga og hafa samningaviðræður þokast áfram í vikunni milli þingflokksformanna og forseta Alþingis.
Þingstörf halda áfram í dag og á mánudaginn og er samkvæmt samkomulagi búist við því að síðasti dagur þingsins á þessu ári verði á þriðjudaginn næstkomandi. Hver flokkur í stjórnarandstöðunni fær þar með sitt mál til afgreiðslu fyrir jól.
Ánægður með samkomulagið
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagðist í samtali við Kjarnann í morgun að mörgu leyti vera ánægður með þetta samkomulag. „Það sem mér finnst spennandi er að þingflokksformenn taki stöðuna eftir áramót og hittist með reglubundnum hætti eftir það,“ sagði hann. Þannig fengju þingmannamál meira vægi en honum hefur fundist ganga hægt hjá ríkisstjórninni að efna yfirlýsingar sínar um samvinnu.
„Svo verður bara að koma í ljós hvort þetta virki en þetta er ágætis byrjun. Það er gott að búa til vettvang sem byggist á trausti,“ sagði Logi.
Hann sagði jafnframt að eftir þessa stuttu reynslu sína á þingi þá væri tilfinning hans sú að verklag á Alþingi væri að einhverju leyti fyrirfram tilbúið handrit sem byggðist á tortryggni en hann taldi að full ástæða væri til að breyta því. Stjórnarandstöðuflokkarnir ættu að hafa sinn rétt og sömuleiðis sína rödd. „Með því að gera þetta samkomulag þá er það viðleitni til að breyta þessu.“