Halldóra: Vonandi upphafið af þeim bættu vinnubrögðum sem ríkisstjórnin hefur lofað

Samkomulag hefur náðst á milli þingflokksformanna og þingforseta um þinglok í næstu viku. Í samkomulaginu felst einnig loforð um bætt verklag til framtíðar.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Auglýsing

Einn hluti sam­komu­lags, sem for­menn þing­flokk­anna og for­seti Alþingis hafa gert sín á milli, snýr að því að bæta verk­lag til fram­tíðar varð­andi afgreiðslu þing­manna­mála. Þing­flokks­for­menn munu sam­kvæmt sam­komu­lag­inu hitta for­seta Alþingis í jan­úar næst­kom­andi og fara yfir stöð­una. Þau munu enn fremur hitt­ast með reglu­bundnum hætti eftir það.

Hall­dóra Mog­en­sen, þing­flokks­for­maður Pírata, segir í sam­tali við Kjarn­ann það vera í sjálfu sér áhuga­vert að minni­hlut­inn hafi þurft að knýja bætt verk­lag fram í þess­ari samn­inga­lotu. „Von­andi er þetta upp­hafið af þeim bættu vinnu­brögðum sem rík­is­stjórnin hefur verið að lof­a,“ segir hún.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að þing­flokks­for­menn­irnir hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um þing­lok en sam­kvæmt starfs­á­ætlun þings­ins átti síð­asti þing­fundur fyrir jóla­frí að vera í dag. Það náði þó ekki fram að ganga og hafa samn­inga­við­ræður þok­ast áfram í vik­unni milli þing­flokks­for­manna og for­seta Alþing­is.

Auglýsing

Þing­störf halda áfram í dag og á mánu­dag­inn og er sam­kvæmt sam­komu­lagi búist við því að síð­asti dagur þings­ins á þessu ári verði á þriðju­dag­inn næst­kom­andi. Hver flokkur í stjórn­ar­and­stöð­unni fær þar með sitt mál til afgreiðslu fyrir jól.

Ánægður með sam­komu­lagið

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagð­ist í sam­tali við Kjarn­ann í morgun að mörgu leyti vera ánægður með þetta sam­komu­lag. „Það sem mér finnst spenn­andi er að þing­flokks­for­menn taki stöð­una eftir ára­mót og hitt­ist með reglu­bundnum hætti eftir það,“ sagði hann. Þannig fengju þing­manna­mál meira vægi en honum hefur fund­ist ganga hægt hjá rík­is­stjórn­inni að efna yfir­lýs­ingar sínar um sam­vinnu.

Logi Einarsson Mynd: Bára Huld

„Svo verður bara að koma í ljós hvort þetta virki en þetta er ágætis byrj­un. Það er gott að búa til vett­vang sem bygg­ist á traust­i,“ sagði Logi.

Hann sagði jafn­­framt að eftir þessa stuttu reynslu sína á þingi þá væri til­­f­inn­ing hans sú að verk­lag á Alþingi væri að ein­hverju leyti fyr­ir­fram til­­­búið hand­­rit sem bygg­ð­ist á tor­­tryggni en hann taldi að full ástæða væri til að breyta því. Stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arnir ættu að hafa sinn rétt og söm­u­­leiðis sína rödd. „Með því að gera þetta sam­komu­lag þá er það við­­leitni til að breyta þessu.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent