Arion banki greiðir sekt vegna hagsmunaárekstra

Arion banki og Fjármálaeftirlitið hafa samið um að bankinn greiði sekt, vegna hagsmunaárekstra þegar United Silicon vann að fjármögnun verkefna í Helguvík.

Arion banki
Auglýsing

Arion banki þarf að greiða 21 milljón í sekt, í tengslum við sátt sem bank­inn hefur gert við FME. Eft­ir­litið til­kynnti Arion banka í apríl 2018 að það hefði til skoð­unar með­ferð bank­ans á hags­muna­á­rekstrum í tengslum við aðkomu bank­ans að fjár­mögnun kís­il­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík. 

Þeirri skoðun er nú lok­ið með sátt þar sem Arion banki við­ur­kennir að láðst hafi að skrá með skipu­legum og form­legum hætti innan bank­ans grein­ingu hags­muna­á­rekstra í tengslum við kaup líf­eyr­is­sjóða á skulda­bréfum á árinu 2015 og þátt­töku þeirra í hluta­fjár­hækk­unum Sam­ein­aðs Síli­kons hf. á árunum 2016 og 2017. 

Heim­ilt er að ljúka málum sem þessum með sátt, enda er ekki um að ræða meiri háttar brot og fellst Arion banki á að greiða sekt að fjár­hæð 21 milljón króna.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá bank­anum segir að Arion banki hafi gegnt fjöl­þættu hlut­verki við öflun fjár­magns til upp­bygg­ingar verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík sem „óhjá­kvæmi­lega fól í sér hags­muna­á­rekstra“. 

Bank­inn upp­lýsti við­skipta­vini sína um þessi tengsl og gætti þess að til staðar væru við­eig­andi mót­væg­is­að­gerðir til að koma í veg fyrir að hags­muna­á­rekstr­ar­ ­myndu skaða hags­muni við­skipta­vina. „Hvorki voru gerðar athuga­semdir við grein­ingu hags­muna­á­rekstra né mót­væg­is­að­gerðir bank­ans en líkt og segir í sátt­inni, láð­ist að skjala grein­ingu á hags­muna­á­rekstrum og hefur bank­inn þegar brugð­ist við þess­ari yfir­sjón og bætt innri skrán­ingu hags­muna­á­rekstra,“ segir í til­kynn­ingu Arion banka. 

Óhætt er að segja að United Sil­icon verk­efnið hafi endað með ósköp­un­um, en félagið fór í þrot, og vinnur Arion banki nú að því að gera sér mat úr því sem eftir sat. Millj­arða­hags­munir eru í húfi fyrir Arion banka, en óljóst er enn hvernig mál­inu lýk­ur, en erfið skil­yrði hafa verið á mark­aði með kísil vegna falls á heims­mark­aðs­verð­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent