Allt að 12 MW fyrir nýtt hátæknigagnaver við Korputorg

Landsvirkjun hefur gert samning um uppbyggingu hátæknigagnavers við Korputorg. Gert er ráð fyrir að það hefji starfsemi á næsta ári.

korputorg-6_19533790339_o.jpg
Auglýsing

Lands­virkjun og Reykja­vík DC, nýtt hátæknigagna­ver í Reykja­vík í eigu Opinna Kerfa, Sýn­ar, Reikni­stofu Bank­anna og Korpu­torgs, hafa und­ir­ritað grænan raf­magns­samn­ing um afhend­ingu á allt að 12 MW til nýs gagna­vers við Korpu­torg í Reykja­vík. Gagna­verið hefur rekstur snemma árs 2020. Reykja­vík DC verður fjórði við­skipta­vinur Lands­virkj­unar í gagna­vers­iðn­aði, enda henta aðstæður á Íslandi sér­stak­lega vel fyrir rekstur gagna­vera.

Frá þessu er greint á vef Lands­virkj­unar.

Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, býður Reykja­vík DC vel­komið í hóp við­skipta­vina Lands­virkj­un­ar. „Við bjóðum Reykja­vík DC vel­komið í hóp fjöl­breyttra við­skipta­vina okk­ar. Sam­starfið við þennan öfl­uga hóp hefur verið far­sælt og með samn­ingnum heldur gagna­vers­iðn­að­ur­inn á Íslandi áfram að vaxa enda eru hér góðar aðstæður til að reka gagna­ver. Samn­ing­ur­inn við Reykja­vík DC stað­festir enn á ný eft­ir­spurn eftir end­ur­nýj­an­legri orku frá Lands­virkjun og sam­keppn­is­hæfni Íslands fyrir rekstur gagna­vera og orku­sæk­inn iðn­að,“ segir Hörð­ur.

Auglýsing

Fyrsta hátæknigagna­verið í Reykja­vík

Að baki Reykja­vík DC standa inn­lendir aðilar með víð­tæka reynslu og þekk­ingu á rekstri upp­lýs­inga­tækni­kerfa, fjar­skipta, fast­eigna og alþjóða­við­skipta. Sér­hæf­ing Reykja­vík DC snýr að örygg­is- og umhverf­is­mál­um. „Gagna­verið nýtir raf­magn úr 100% end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum og upp­fyllir Tier3-­stað­al. Reykja­vík DC mun bjóða sam­bæri­lega þjón­ustu við það sem best ger­ist í heim­inum og full­nægja ströng­ustu kröf­um. Þjón­usta gagna­vers­ins verður sniðin að þörfum inn­lendra og erlendra við­skipta­vina sem kjósa gæði og örygg­i,“ segir í til­kynn­ingu.

Vott­aður grænn raf­magns­samn­ingur (e. Green PPA)

Samn­ing­ur­inn verður vott­aður sem grænn raf­magns­samn­ingur (e. cor­porate green power purchase agreem­ent) og með raf­orku­söl­unni fylgja upp­runa­á­byrgðir sem stað­festa að orkan er unnin úr end­ur­nýj­an­legum orku­gjöf­um, segir í til­kynn­ingu. „Vax­andi fjöldi vott­aðra grænna raf­magns­samn­inga stórra raf­orku­kaup­enda, svo sem leið­andi gagna­vers­fyr­ir­tækja í Evr­ópu og Norður Amer­íku, er merki um vax­andi áherslu á lofts­lags­mál og sjálf­bærni. Fyr­ir­tæki sem eru með­vituð um hlut­verk end­ur­nýj­an­legrar orku í bar­áttu við lofts­lags­breyt­ingar leggja í auknum mæli áherslu á að fá hana vott­aða sem slíka og greiða fyrir það sér­stak­lega,“ segir enn­frem­ur.

Ísland sam­keppn­is­hæft og ákjós­an­legt fyrir gagna­ver

Mikil sókn­ar­færi eru í gagna­vers­iðn­aði sem er sá iðn­aður í heim­inum sem vex einna örast. End­ur­nýj­an­leg orka, sam­keppn­is­hæft verð í lang­tíma­samn­ing­um, afhend­ingar­ör­yggi og íslenskt veð­ur­lag eiga þátt í að skapa afar hag­stætt rekstr­ar­um­hverfi fyrir ört vax­andi gagna­vers­iðnað á Íslandi. Svalt og stöðugt lofts­lag dregur úr kostn­aði við kæl­ingu á tölvu­bún­aði sem hitnar mikið við notk­un. Loft­kæl­ingin kemur í veg fyrir að eyða þurfi mik­illi orku í að kæla bún­að­inn og því er hag­kvæmara og umhverf­is­vænna að knýja hann á Íslandi en víða ann­ars staðar í heim­in­um. 

Orka úr 100% end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum

Raf­magnið sem samn­ing­ur­inn nær til verður afhent úr núver­andi afl­stöðvakerfi Lands­virkj­unar en fyr­ir­tækið hefur á und­an­förnum árum aukið umtals­vert við vinnslu­getu sína með nýjum afl­stöðvum sem vinna orku úr 100% end­ur­nýj­an­legum orku­gjöf­um, vatns­afli, jarð­varma og vind­orku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent