Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað nefnd um vandaða starfshætti í vísindum. Meginhlutverk nefndarinnar er að upplýsa stjórnvöld, almenning og vísindasamfélagið um vandaða starfshætti í vísindum og um vísindasiðfræði og hafa eftirlit með því að siðferðileg viðmið séu í heiðri höfð í starfi vísindamanna.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins í dag.
Þá kemur fram að fjórir af sjö nefndarmönnum hafi verið skipaðir samkvæmt tilnefningu Samstarfsnefndar háskólastigsins. Auglýst hafi verið í fjölmiðlum eftir tilnefningum í þrjú sæti og skipað úr hópi þeirra nafna sem bárust. Við skipun nefndarinnar hafi verið haft til hliðsjónar að þess skuli gætt að í nefndinni sé fyrir hendi þekking á vísindasiðfræði, lögfræði og ólíkum rannsóknarsviðum, þar með talið rannsóknum í atvinnulífinu.
Aðalmenn í nefndinni eru:
- Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki og siðfræði við Háskólann á Akureyri, formaður,
- Björg Thorarensen, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands,
- Eyja Margrét Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði við Háskóla Íslands,
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands,
- Hilma Hólm, yfirmaður hjarta- og æðarannsókna hjá Íslenskri Erfðagreiningu og
- Runólfur Pálsson, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands.
Varamenn eru:
- Ása L. Aradóttir, prófessor í vistheimtarfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands,
- Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands,
- Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu,
- Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, doktorsnemi í safnafræðum við Háskóla Íslands,
- Róbert H. Haraldsson, sviðsstjóri kennslusviðs og prófessor við Hugvísindasvið hjá Háskóla Íslands,
- Skúli Skúlason, prófessor í vistfræði við Háskólann á Hólum og
- Þórdís Ingadóttir, dósent við Lagadeild Háskólans í Reykjavík.