Gunnar Jakobsson skipaður varaseðlabankastjóri á sviði fjármálastöðugleika

Reynsla Gunnars af alþjóðlegum fjármálamarkaði, og reynsla af verkefnum á sviði fjármálastöðugleika, réð úrslitum.

Gunnar Jakobsson.jpg
Auglýsing

Gunnar Jak­obs­son, lög­fræð­ingur og MBA frá Yale, hefur verið skip­aður vara­seðla­banka­stjóri á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika, en það var Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, sem skip­aði hann eftir umsókn­ar­ferli og til­nefn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son­ar. 

Eins og Kjarn­inn greindi frá þá mat hæf­is­nefnd, fimm ein­stak­linga mjög vel hæfa til að gegna starf­inu, en auk Gunn­ars voru það Guð­rún Johnsen, hag­fræð­ing­ur, Jón Þór Sturlu­son, hag­fræð­ing­ur, Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og Yngvi Örn Krist­ins­son, hag­fræð­ing­ur. 

Grein­ar­gerð hæf­is­nefnd­ar­inn­ar, um umsækj­end­ur, hefur nú verið birt, og einnig rök­stuðn­ingur sem Bjarni Bene­dikts­son lét fylgja til­nefn­ingu sinn­i. 

Auglýsing

„Er það nið­ur­staða for­sæt­is­ráð­herra á grund­velli heild­ar­mats á um­sókn­ar­gögn­um, grein­ar­gerð hæfn­is­nefndar og rök­stuðn­ingi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fyrir til­nefn­ingu sinni, og ann­arra gagna máls­ins, að til­nefn­ing fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra bygg­ist á traustum mál­efna­legum grunni og að Gunnar Jak­obs­son sé í reynd, á grund­velli þeirra mats­þátta sem lagðir eru til grund­vallar í nýjum lögum um Seðla­banka Íslands og í aug­lýs­ingu um emb­ætt­ið, hæf­astur umsækj­enda til að hljóta skipun í emb­ætti vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika,“ segir í til­kynn­ingu frá Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra.

Gunnar Jak­obs­son lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1995 og MBA námi frá Yale háskóla árið 2001. Þá hlaut hann CFA-rétt­indi frá CFA-­stofn­un­inni í Charlottes­ville í Virg­iníu árið 2006. Gunnar starf­aði sem lög­fræð­ingur í upp­boðs­deild hjá sýslu­mann­inum í Reykja­vík árið 1995 en seinna sama ár hóf hann störf sem hér­aðs­dóms­lög­maður hjá Lög­manns­stof­unni Síðu­múla 9. Á árunum 1997 til 1999 starf­aði hann sem lög­fræð­ingur á nefnda­sviði Alþing­is, m.a. sem rit­ari efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar. Gunnar hóf störf hjá fjár­fest­inga­bank­anum Gold­man Sachs & Co. sum­arið 2000 og starfar þar enn í dag, fyrst í New York en frá árinu 2018 í London. Fyrsta árið var Gunnar full­trúi á rekstr­ar­sviði bank­ans. 

Á árunum 2001 til 2004 var Gunnar full­trúi og síðar yfir­maður á rekstr­ar­sviði bank­ans. Á árunum 2006 til 2008 var hann yfir­maður á rekstr­ar­á­hættu­sviði bank­ans, á árunum 2006 til 2008 yfir­maður og rekstr­ar­stjóri áhættu­sviðs eigna­stýr­ing­ar, rekstr­ar- og starfs­manna­stjóri mark­aðs­á­hættu­sviðs á árunum 2008 til 2012, fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­deildar mark­aðs­á­hættu­sviðs á árunum 2012 til 2015 og fram­kvæmda­stjóri lausa­fjársviðs áhættu­stýr­ingar á árunum 2015 til 2018. Frá árinu 2018 hefur Gunnar gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra lausa­fjársviðs og per­sónu­verndar fyrir Gold­man Sachs International í London. Gunnar var stunda­kenn­ari í almennri lög­fræði á árunum 1995 til 1998 við laga­deild Háskóla Íslands. Þá sat hann í stjórn The Risk Mana­gement Associ­ation árin 2017 til 2019, að því er segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent