Guðfinnur Sigurvinsson stjórnsýslufræðingur og Vigdís Häsler lögfræðingur hafa verið ráðin starfsmenn þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa þegar hafið störf.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
„Guðfinnur Sigurvinsson hefur starfað við almanna- og fjárfestatengsl og fjölmiðlun. Hann var síðast samskiptastjóri Sýnar hf. móðurfélags Vodafone, Stöðvar 2 og tengdra fjölmiðla. Þar áður starfaði hann sem upplýsingafulltrúi og teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun. Guðfinnur starfaði í áratug sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu. Guðfinnur lauk B.A. prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 2013 og MPA prófi í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla 2018. Guðfinnur er fyrsti varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og situr jafnframt í umhverfisnefnd,“ segir í tilkynningunni.
Jafnframt kemur fram að Vigdís Häsler hafi áður verið aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra en undanfarið hafi hún starfað sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem hún hafi sinnt undirbúningi og gerð umsagna um lagafrumvörp og önnur þingmál og tekið þátt í samskiptum við Alþingi. „Einnig annaðist hún lögfræðilega ráðgjöf og upplýsingagjöf til sveitarstjórnarmanna. Vigdís starfaði áður sem lögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka. Hún lauk BA prófi í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri 2006, meistaraprófi 2008 og ári seinna hlaut hún málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Árið 2013 lauk hún LLM prófi í alþjóðlegum refsirétti frá University of Sussex í Bretlandi. Vigdís hefur setið í stjórn Félags kvenna í lögmennsku.“