Nýtt skipurit Seðlabanka Íslands tók gildi í dag á grundvelli nýrra laga um Seðlabanka Íslands vegna sameiningar Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í upphafi þessa árs. Frá þessu er greint á vef Seðlabankans.
Samkvæmt skipuritinu verða kjarnasvið bankans sjö, það er hagfræði og peningastefna, markaðsviðskipti, fjármálastöðugleiki, bankar, lífeyrir og vátryggingar, markaðir og viðskiptahættir, og lagalegt eftirlit og vettvangsathuganir.
Stoðsvið bankans verða fjögur, það er rekstur, upplýsingatækni og gagnasöfnun, fjárhagur, og mannauður. Jafnframt er í skipuritinu miðlæg skrifstofa bankastjóra. Með nýju skipuriti verða nokkur svið lögð niður eða sameinuð, starfsfólk færist til og átta störf verða lögð niður, samkvæmt Seðlabankanum.