Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður utanríkismálanefndar, hefur kallað eftir því að Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra komi sem fyrst á fund utanríkismálanefndar þingsins til að ræða ástandið milli Írans og Bandaríkjanna.
Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu þingmannsins.
Þá vill hún að á fundinum verði rædd áhrif gagnkvæmra árása á svæðið, hvaða stefnu og sýn íslensk stjórnvöld hafi á málið, mögulega framvindu og þá áhrif. Enn fremur hvort utanríkisráðherra hafi verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld eða önnur stjórnvöld vegna árásarinnar á hershöfðingjann Qassem Suleimani, og þá hver þau samskipti hafi verið.
Ísland verður að taka afdráttarlausa afstöðu
„Nýtt ár sem byrjar með gagnkvæmum árásum og hótunum milli Bandaríkjanna og Írans veldur ugg og óvissu um afleiðingar stórkarlalegra upphrópana. Þetta er ekki einfaldur leikur karla sem fela sig á bakvið Twitter, heldur snýst um líf venjulegs fólks sem verður alltaf mest fyrir barðinu á öllu stríðsbrölti,“ skrifar Rósa Björk.
Þá telur hún að Ísland verði að taka afdráttarlausa afstöðu gegn hótunum um stríð og hernaðarárásum á svæðinu, svæði þar sem viðkvæmt stjórnmalaástand geti breyst í púðurtunnu á skömmum tíma með tilheyrandi afleiðingum. „Líka á utanríkisstefnu Íslands eins og við þekkjum af biturri reynslu. Og alveg sérstaklega þegar æðsti valdamaður Bandaríkjanna er jafn óáreiðanlegur, hvatvís og ótraustur og raunin er núna,“ skrifar hún.
Nýtt ár sem byrjar með gagnkvæmum árásum og hótunum milli Bandaríkjanna og Írans veldur ugg og óvissu um afleiðingar...
Posted by Rósa Björk Brynjólfsdóttir on Thursday, January 9, 2020