Þeim sem gerst hafa sekir um kynferðisbrot verði neitað um starfsleyfi ökukennara

Lagt er til í nýjum drögum að breytingu á reglugerð um ökuskírteini að sett verði inn heimild til að neita þeim um starfsleyfi ökukennara sem gerst hafa sekir um kynferðisbrot og að neita megi þeim um ökuskírteini sem háðir eru notkun áfengis.

tesla_9950890725_o.jpg
Auglýsing

Lagt er til, í nýjum drögum að breyt­ingu á reglu­gerð um öku­skír­teini vegna til­komu nýrra umferð­ar­laga, að sett verði inn heim­ild til að neita þeim um starfs­leyfi öku­kenn­ara sem gerst hafa sekir um kyn­ferð­is­brot. Drögin eru komin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagn­ar­frestur er til 24. jan­úar næst­kom­andi.

Ný umferð­ar­lög tóku gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í þeim eru marg­vís­legar breyt­ingar sem kalla á end­ur­skoðun reglu­gerða, sam­kvæmt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­in­u. 

Neita megi þeim um öku­skír­teini sem háðir eru notkun áfengis

Meðal þess sem breytt­ist eru ákvæði um öku­kennslu, æfinga­akstur og heil­brigð­is­skil­yrði fyrir öku­rétt­indi. Þá kveða nýju lögin á um að við end­ur­nýjun öku­rétt­inda eftir svipt­ingu skuli sækja sér­stakt nám­skeið hjá Sam­göngu­stofu. Sömu­leiðis að neita megi þeim um öku­skír­teini sem háðir eru notkun áfeng­is.

Auglýsing

Jafn­framt er lagt til í nýju drög­unum að með umsókn um öku­skír­teini eftir svipt­ingu öku­réttar skuli fylgja stað­fest­ing þess að umsækj­andi hafi sótt nám­skeið í þeim til­vikum þegar öku­maður hefur verið sviptur öku­rétt­indum í annað sinn vegna akst­urs undir áhrifum áfengis eða ann­arra vímu­efna.

For­stjóri Sam­göngu­stofu skipi trún­að­ar­lækni til fimm ára

Lagt er til að nám eftir svipt­ingu í annað sinn vegna akst­urs undir áhrifum verði sex bók­legar kennslu­stundir og að við­kom­andi skuli sitja öku­próf að nýju. Einnig er lagt til að tekið sé fram að bók­legt öku­nám megi fara fram raf­rænt.

Þá er lagt til að for­stjóri Sam­göngu­stofu skipi trún­að­ar­lækni til fimm ára sem ber ábyrgð á mati á akst­urs­hæfni. Þá er lagt til að stofn­un­inni verði heim­ilt að gera samn­ing við fleiri en einn lækni til að gegna starf­inu. Lagt er til að trún­að­ar­læknir hafi hreint saka­vott­orð, almennt lækn­inga­leyfi og víð­tæka þekk­ingu og reynslu í lækn­is­fræði.

Sam­kvæmt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu gera ný umferð­ar­lög ekki ráð fyrir því að öku­kenn­arar skili inn virkni­vott­orði við umsókn um end­ur­nýjun leyf­is. Því sé lagt til að öku­kenn­ari skuli þreyta próf í öku­kennslu, sé meira en ár liðið frá því að starfs­leyfi féll úr gildi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent