Endurskoða lög um ráðherraábyrgð og Landsdóm

Forsætisráðherra mun í samráði við dómsmálaráðherra fela sérfræðingi að ráðast í endurskoðun á lögum um ráðherraábyrgð annars vegar og lögum um Landsdóm hins vegar. Vonir standa til þess að vinnunni verði lokið á haustmánuðum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Katrín Jakobsdóttir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að ráð­ast í end­ur­skoðun á lögum um ráð­herra­á­byrgð ann­ars vegar og lögum um Lands­dóm hins veg­ar. Til­lagan var lögð fram af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Þá kemur fram að for­sæt­is­ráð­herra muni í sam­ráði við dóms­mála­ráð­herra fela sér­fræð­ingi að leiða vinn­una og „standa vonir til þess að henni verði lokið á haust­mán­uð­u­m.“

Auglýsing

„Rík þörf“ á end­ur­skoðun lag­anna

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­anna tveggja segir að á und­an­förnum ára­tugum hafi lög um ráð­herra­á­byrgð og Lands­dóm sætt gagn­rýni hér á landi í ljósi rétt­ar­þró­unar í saka­mála­rétt­ar­fari. Slíka gagn­rýni sé til að mynda að finna í skýrslu um starfs­skil­yrði stjórn­valda frá 1999, skýrslu um eft­ir­lit Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu frá 2009 og í skýrslu þing­manna­nefndar til að fjalla um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis frá 2010. Árið 2010 hafi Alþingi ályktað að slík end­ur­skoðun skyldi fara fram á vegum Alþingis en ekki hafi orðið af þeirri end­ur­skoð­un.

„Í þeirri vinnu sem nú stendur yfir um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á vett­vangi for­manna stjórn­mála­flokka hefur mál­efnið verið rætt og ljóst að rík þörf er á end­ur­skoðun lag­anna,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni mun end­ur­skoðun lag­anna meðal ann­ars taka til skýr­leika refsi­á­kvæða um emb­ætt­is­brot, aðdrag­anda ákæru, svo sem frum­kvæði að rann­sókn á emb­ætt­is­færsl­um, umgjörð máls og hlut­verk þing­nefnda í því sam­bandi, og skipan Lands­dóms.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent