Hagnaður VÍS verður um hálfum milljarði króna meiri en áður var gert ráð fyrir

Hlutabréf í VÍS hækkuðu skarpt í fyrstu viðskiptum í morgun í kjölfar tilkynningar um allt að 22 prósent meiri hagnað á síðasta ári en áður var búist við.

vís
Auglýsing

VÍS sendi í gær­kvöldi frá sér jákvæða afkomu­spá vegna árs­ins 2019. Fyrri spá hafði gert ráð fyrir að hagn­aður trygg­inga­fé­lags­ins yrði 2.508 millj­ónir króna en nýja spáin áætlar að hann verði 2.950 til 3.050 millj­ónir króna. Því mun hagn­aður VÍS, gangi afkomu­spáin eft­ir, verða 442 til 542 millj­ónum króna meiri en reiknað hafði verið með. Það þýðir að hagn­aður VÍS gæti orðið allt að 22 pró­sent meiri en upp­haf­lega afkomu­spáin sagði til um.

Greint er frá þessu í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands. Þar segir að helsta ástæðan fyrir betri afkomu sé hærri ávöxtun fjár­eigna á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs. 

Afkomu­spá VÍS fyrir ári 2020 verður birt þann 31. jan­úar og upp­gjör árs­ins 2019 verður birt þann 27. febr­úar næst­kom­andi.

Auglýsing
Hlutabréf í VÍS tóku kipp í fyrstu við­skiptum í morgun eftir að greint hafði verið frá þessu og höfðu hækkað um 2,91 pró­sent fyrir klukkan 10. 

Í til­kynn­ingu sem VÍS sendi til Kaup­hallar skömmu fyrir jól í fyrra kom fram að ávöxtun fjár­fest­inga­eigna trygg­inga­fé­lags­ins hefði verið 9,2 pró­sent frá ára­mótum og til 20. des­em­ber 2019. Þa sagði einnig að sam­setta hlut­fallið í rekstr­in­um, sem er tjóna­kostn­að­ur, end­ur­trygg­inga­kostn­aður og rekstr­ar­kostn­aður af vátrygg­inga­hluta sem hlut­fall af iðgjöld­um, hefði verið 99,2 pró­sent það sem af er ári. Á þeim tíma sem til­kynn­ingin var send út hafði VÍS greitt við­skipta­vinum rúm­lega 15,5 millj­arða króna í tjóna­bætur á árinu 2019. 

Virði hluta­bréfa í VÍS hækk­aði um sjö pró­sent á síð­asta ári. Mark­aðsvirði félags­ins var tæp­lega 21 millj­arður króna við upp­haf við­skipta í morg­un. Stærstu eig­endur VÍS eru Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins A- og B-deild (sam­tals 9,59 pró­sent) Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna (8,13 pró­sent), breski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn LF Miton UK Multi Cap Income [7,23 pró­sent), og fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Lans­downe ICAV Lans­downe Euro (7,25 pró­sent). 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent