Samherji ætlar að þróa kerfi til að hindra spillingu og peningaþvætti

Samherji ætlar að klára að innleiða kerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti, á þessu ári. Ástæðan er „reynsla af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu.“

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, þegar hann tók við starfinu.
Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja, þegar hann tók við starfinu.
Auglýsing

Sam­herji ætlar að þróa og inn­leiða heild­rænt stjórn­un­ar- og reglu­vörslu­kerfi sem bygg­ist á áhættu­skipu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars með áherslu á spill­ingu, efna­hags­legar refsi­að­gerðir og pen­inga­þvætti. Þetta segir Björgólfur Jóhanns­son starf­andi for­stjóri Sam­herja, í frétta­til­kynn­ingu.

Þar kemur fram að stefnt sé að því að ljúka inn­leið­ingu kerf­is­ins síðar á þessu ári og að ákvörðun um inn­leið­ingu kerf­is­ins hafi verið tekin á „grund­velli reynslu af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu.“

Sam­herji seg­ist vera að draga úr starf­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það sé hins vegar ljóst að það muni taka ein­hvern tíma. „Allar ákvarð­anir vegna starf­sem­innar í Namibíu verða teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­völd og í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­ur,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Þar er einnig haft eftir Björgólfi að ­kerfið muni „gegna lyk­il­hlut­verki í nýrri áætlun þar sem við munum krefj­ast þess að allir starfs­menn taki virkan þátt í ferli til að end­ur­meta gildi okk­ar, menn­ingu og starfsvenj­ur. Við munum síðan inn­leiða verk­ferla fyrir áhættu­mat og siða­reglur í sam­ræmi við kerf­ið.“

Segir að tek­ist hafi að verja öll við­skipta­sam­bönd

Sam­herji hefur verið í miklu brim­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeer­a og Wiki­leaks um mút­u­greiðsl­­ur, meint pen­inga­þvætti og skattsnið­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­þús­undum gagna og upp­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­son­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­manns Sam­herja í Namib­­íu. 

Auglýsing
Þegar er búið að hand­­taka og ákæra Bern­hard Es­au, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­íu, Sacky S­hang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­íu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­ónir namibískra doll­­­­­ara, jafn­­­­­virði 860 millj­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­sóttan kvóta í land­in­u.  Auk S­hang­hala og Es­au voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­for­­­­­maður namibísku rík­­­­­is­út­­­­­­­­­gerð­­­­­ar­inn­ar Fis­hcor ný­ver­ið, Tam­son 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­son­ur Es­au, Ricar­do Gusta­vo, sam­­­­­starfs­­­­­maður hans og Pi­us Mwa­telu­lo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­skyld­u­­­­­bönd­um, ákærð­­­­ir.

Mál Sam­herja er til rann­­sóknar í Namib­­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­mála­rann­­sókn.

Í frétta­til­kynn­ing­unni sem birt er á vef Sam­herja í dag seg­ir ­Björgólfur að þrátt fyrir alvar­legar ásak­anir á hendur félag­inu í fjöl­miðlum hafi tek­ist að verja öll sam­bönd við við­skipta­vini og sam­starfs­að­ila þess, bæði hér inn­an­lands og erlend­is. Sam­herji hafi náð að þjón­usta alla við­skipta­vini sína með sama hætti og félagið hafi gert í gegnum tíð­ina. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent