Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að setja Fanneyju Rós Þorsteinsdóttur í embætti ríkislögmanns, tímabundið til þriggja mánaða.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Fanney Rós gegnir embættinu í fjarveru Einars Karls Hallvarðssonar ríkislögmanns en fram kom í Fréttablaðinu í morgun að hann væri kominn í ótímabundið veikindaleyfi.
Auglýsing
Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að Fanney Rós hafi útskrifast með kandídatspróf frá Háskóla Íslands árið 2005 og meistaragráðu frá Columbia-háskóla árið 2012. Hún hafi fengið réttindi til málflutnings í héraði árið 2006 og fyrir Hæstarétti árið 2014. Hún hafi jafnframt starfað við embætti ríkislögmanns frá 2012.