Nefnd um rannsókn og saksókn skattalagabrota, sem skipuð var síðastliðið vor hefur skilað frá sér skýrslu. Nefndinni var falið að greina þær kröfur sem leiða af dómum mannréttindadómstóls Evrópu í tengslum við rannsókn og saksókn skattalagabrota og móta afstöðu til þeirra breytinga sem þarf að ráðast í til að mæta þeim kröfum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Helstu niðurstöður nefndarinnar eru í fyrsta lagi að hætt verði að beita álagi við endurákvörðun skatta þegar mál fer í refsimeðferð, en um svokallaða sænsku leið er að ræða. Þegar um skattskil einstaklinga ræðir verði ekki hvoru tveggja beitt álagi og annarri refsingu vegna sama skattalagabrots. Til þess að svo verði þurfi að breyta ákvæðum viðeigandi skattalaga.
Í öðru lagi að aukin verði samvinna þeirra stofnana sem rannsaka brot gegn skattalögum, eftir atvikum með breytingu laga um meðferð sakamála og setningu reglna á þeim grundvelli. Í þriðja lagi að stefnt verði að því að tryggja frekari efnislega og tímalega samþættingu við rannsókn og ákærumeðferð skattalagabrota. Kannað verði nánar hvort því verði náð með sameiningu stofnana.
Í tilkynningu ráðuneytanna kemur fram að nú þegar hafi fjármálaráðherra lagt fram frumvarp til breytinga á ýmsum skattalögum, sem miði að því að horfið verði tímabundið frá beitingu álags á undandregna skattstofna í þeim málum sem fara í farveg refsimeðferðar. Með því móti sé strax brugðist við þeim vanda sem er til staðar í kerfinu meðan unnið verði að varanlegum breytingum á skattrannsóknum á þessu sviði.
Skipa vinnuhóp
Í ljósi þessara niðurstaðna hafa Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra því ákveðið að skipa vinnuhóp til að útfæra tillögur nefndarinnar í formi frumvarps, þar sem lagðar verði til þær breytingar á efnisreglum, stofnanauppbyggingu og samstarfi sem dugi til þess að tvöföldum refsingum verði ekki beitt í þessum málaflokki.
Vinnuhópinn skipa Ása Ólafsdóttir, sem er formaður, Hinrika Sandra Ingimundardóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og Ingibjörg Helga Helgadóttir, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Vinnuhópnum verður falið að eiga í nánu samráði við hlutaðeigandi stofnanir, þ.e. Skattinn, skattrannsóknarstjóra, ríkissaksóknara og héraðssaksóknara.
Áætlað er að frumvarp verði tilbúið og lagt fram á haustþingi 2020. Í kjölfarið af því taki við vinna við að fara með frumvarpið í gegnum Alþingi og undirbúningur hafinn við fyrirhugaðar breytingar innan kerfisins.