Guðmundur hættur sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar hefur látið af störfum. Ástæðan er ólík sýn hans og meirihluta bæjarstjórnar á verkefni á vettvangi sveitarstjórnarstigsins.

Auglýsing
Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ

Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar Ísa­fjarð­ar­bæjar og Guð­mundur Gunn­ars­son bæj­ar­stjóri hafa kom­ist að ­sam­komu­lagi um starfs­lok Guð­mund­ar. Hann lætur af störfum nú þeg­ar. 

Í til­kynn­ingu segir að ástæða starfs­loka sé ólík­ ­sýn á verk­efni á vett­vangi sveit­ar­fé­lags­ins. „Telja aðilar það sveit­ar­fé­lag­inu fyrir bestu að leiðir skilj­i. Það mun skýr­ast á allra næstu dögum hvernig ráðn­ingu á næsta bæj­ar­stjóra verður hag­að.“ Guð­mundur segir í sam­tali við Kjarn­ann að starfs­lokin hafi átt sér stuttan aðdrag­anda. Hann vill þó ekki tjá sig frekar um málið en það sem fram kemur í til­kynn­ing­unn­i. 

Þangað til ráðið verður í starfið mun bæj­ar­rit­ari, sem er stað­geng­ill bæj­ar­stjóra, gegna því. Í til­kynn­ing­unni óskar meiri­hlut­inn Guð­mundi vel­farn­aðar og þakkar honum fyrir sam­starf­ið. „Guð­mundur vill koma á fram­færi ein­lægum þökkum til íbúa Ísa­fjarð­ar­bæjar fyrir frá­bær­ara við­tökur og á­nægju­legt sam­starf. Hann segir það heiður að hafa fengið tæki­færi til að vinna að mik­il­væg­um hags­muna­málum Vest­firð­inga með kraft­miklu starfs­fólki sveit­ar­fé­lags­ins. Það eru spenn­andi og krefj­andi verk­efni framundan í Ísa­fjarð­arbæ og rík ástæða til að horfa björt­u­m augum til fram­tíð­ar.“

Auglýsing

Guð­mundur var ráð­inn í starf bæj­ar­stjóra í ágúst 2018 af meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sem mynd­aður var þar eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar fyrr á því ári. Hann er með meist­­ara­­próf í alþjóða­við­­skiptum frá Háskól­­anum í Reykja­vík og B.A. próf í fjöl­miðla­fræði frá Háskól­­anum á Akur­eyri. Áður en Guð­mundur tók við starfi bæj­ar­stjóra hafði hann starfað þrjú ár sem fram­­kvæmda­­stjóri AFS á Íslandi en áður stýrði hann alþjóða­sviði 66° NORÐUR og var einnig frétta- og dag­­skrár­­gerð­­ar­­maður RÚV um nokk­­urra ára skeið.

Starfs­lok Guð­mundar hafa greini­lega ekki átt sér langan aðdrag­anda. Hann vakti umtals­verða athygli á síð­ustu vikum með fram­göngu sinni eftir að snjó­flóð féllu innan sveit­ar­fé­lags­ins. Á föstu­dag var greint frá því að Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­­son fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son sam­­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráð­herra hefðu ákveðið að skipa starfs­hóp til að móta til­­lögur um aðgerðir til að treysta atvinn­u­líf og búsetu á Flat­eyri við Önund­­ar­­fjörð í kjöl­far snjó­­­flóðs­ins þann 14. jan­úar síð­­ast­lið­inn.

Verk­efni starfs­hóps­ins á að vera að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flat­eyrar á sam­­fé­lags­­legum innviðum og gera til­­lögur um aðgerðir sem treyst geta stoðir byggð­­ar­inn­­ar.

Á meðal þeirra sem skip­aðir voru í þann starfs­hóp var Guð­mund­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent