Pósturinn mun hætta dreifingu á ónafnamerktum fjölpósti á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Selfossi og Akranesi frá og með 1. maí næstkomandi. Pósturinn mun halda áfram bjóða upp á dreifingu á fjölpósti á öðrum svæðum og í dreifbýli. Þessi breyting leiðir til um 200 milljóna króna lækkunar kostnaðar á ársgrundvelli hjá fyrirtækinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. Þá segir enn fremur að ríflega 30 starfsmönnum verði sagt upp störfum frá og með deginum í dag.
„Magn fjölpósts hefur dregist mikið saman á undanförnum árum og mikil fækkun almennra bréfa hefur haft það í för með sér að minni samlegðaráhrif eru á dreifingu bréfapósts og fjölpósts. Áður fóru bréfberar í nær öll hús með bréf og því féll það vel að starfseminni að dreifa fjölpósti á sama tíma en nú hefur bréfum fækkað svo mikið að oft fara bréfberar eingöngu með fjölpóst en engin bréf og því er lítill rekstrargrundvöllur fyrir þessari þjónustu,“ segir í tilkynningunni.
Sífellt stærri hópur almennings vill ekki fá fjölpóst
„Einnig ber að horfa til þess að sífellt stærri hópur almennings vill ekki fá fjölpóst, m.a. vegna umhverfissjónarmiða, og hefur sá hópur stækkað mikið á síðustu misserum. Sú þróun mun halda áfram með aukinni umhverfisvitund almennings og þróun á stafrænum lausnum. Þetta leiðir til þess að mikið magn pappírs sem sent er í dreifingu verður eftir í kerfi Póstsins sem flækir starfsemina og skapar kostnað og óhagræði,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að breytingin hafi áhrif á um 40 starfsmenn en mögulegt sé að færa um 10 starfsmenn til í starfi innan fyrirtækisins. Rúmlega 30 starfsmönnum verði því sagt upp störfum frá og með deginum í dag og sé þar um að ræða starfsmenn í flokkun og dreifingu á svæðinu sem um ræðir.
„Rætt verður við þá starfsmenn sem missa vinnuna í dag en ekki verður óskað eftir starfsframlagi á uppsagnartímanum. Að auki verður þeim starfsmönnum sem missa vinnuna boðinn stuðningur við starfslokin svo sem sálfræðiþjónusta og ráðgjöf við atvinnuleit. Pósturinn hefur tilkynnt uppsagnirnar til Vinnumálastofnunar, stéttarfélaga og annarra sem hlut eiga að máli,“ segir í tilkynningunni.
Þarf að horfast í augu við staðreyndir
Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins, segir að eins og kunnugt sé fari nú fram mikil endurskipulagning á starfsemi Íslandspósts og séu þessar aðgerðir hluti af því ferli. „Umbreyting fyrirtækisins hefur gengið vel og nú þegar má merkja viðsnúning í rekstrinum en ljóst er að verkefninu er hvergi nærri lokið og betur má ef duga skal. Við erum önnum kafin við að aðlaga reksturinn að kröfum á nútíma markaði en í svona endurskipulagningu þarf að horfast í augu við staðreyndir og taka margar erfiðar ákvarðanir, þessi ákvörðun er ein þeirra. Ég þakka því góða starfsfólki sem nú kveður okkur fyrir vel unnin störf og óska þeim góðs gengis í næstu verkefnum,“ segir hann.