Bensínverð lækkað skarpt síðustu mánuði

Um mitt ár í fyrra náði bensínverð á Íslandi sínum hæsta punkti frá árinu 2014. Síðustu mánuði hefur það hins vegar lækkað nokkuð skarpt og í hverjum mánuði frá því í október.

mælaborð bensín
Auglýsing

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hefur lækkað um tæp átta pró­sent frá miðjum júlí­mán­uði í fyrra, og fram í jan­úar 2020. Við­mið­un­ar­verðið var 235,2 krónur á lítra í fyrra­sumar en um miðjan jan­úar var það komið niður í 217,1 krónu. Á milli des­em­ber og jan­úar lækk­aði það um 2,7 krónur á lítra.

Þetta kemur fram í nýlega birtri Bens­ín­vakt Kjarn­ans sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.­is.Viðmiðunarverð í janúar 2020. 

Bens­ín­verð var á mjög svip­uðum slóðum um miðjan jan­úar og það var á sama tíma fyrir ári, þegar bens­ín­lítr­inn kost­aði að jafn­­aði 215,5 krón­­ur. Gengi krónu gagn­vart Banda­­ríkja­dal­hækk­aði lít­il­lega á árinu 2019, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­neyt­is­verðs hér­lendis þar sem að inn­kaup á elds­neyti fara fram í döl­u­m. 

Heims­­­mark­aðs­verð á olíu hefur hækkað um tæp 14 pró­­sent frá því í byrjun jan­úar 2019. Verðið hefur þó legið frekar niður á við und­an­far­ið.

Hlutur rík­­is­ins í hverjum lítra 56 pró­­sent

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 20,31 pró­­­sent af verði hans um miðjan jan­úar í sér­­­stakt bens­ín­gjald, 12,60 pró­­­sent í almennt bens­ín­­­gjald og 3,80 pró­­­sent í kolefn­is­­­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­­ur.

Auglýsing
Sam­an­lagt fór því 121,88 krónur af hverjum seldum lítra til rík­­­is­ins, eða 56,14 pró­­­sent. Hæstur fór hlutur rík­­­is­ins í 60,26 pró­­­sent í júlí 2017.

Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar einnig út lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­­­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­­­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­­punkti vegna lag­er­­­stöðu, skamm­­­tíma­­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­­upp­­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­­um. Mis­­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­­­leitt mjög lít­ill.

Lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð í síð­­­­­ustu birtu Bens­ín­vakt var 57 krónur á lítra.

Hlut­­fall olíu­­­fé­laga fer lækk­­andi

Bens­ín­vaktin reiknar loks út hlut olíu­­­­­fé­lags í hverjum seldum lítra sem afgangs­­­stærð þegar búið er að greina aðra kostn­að­­­ar­liði, líkt og farið er yfir hér að ofan. Hlutur olíu­­­­­fé­laga, þ.e. álagn­ingin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 38,38 krónur á hvern seldan bens­ín­lítra. Í maí 2017 fengu olíu­­­­­fé­lög­in, til sam­an­burð­ar, 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra.Þróun bensínverðs undanfarin ár.

Olíu­­­­­fé­lögin taka nú að minnsta kosti 17,68 pró­­­sent af hverjum seldum olíu­­­lítra. Það hlut­­­fall hefur ekki verið lægra frá því í apríl 2019 þegar það nam 16,3 pró­­sent­­um. Það náði lægsta punkti sínum í sept­­­em­ber 2017 þegar olíu­­­­­fé­lögin fengu 11,38 pró­­­sent í sinn hlut.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent