Nýverið auglýsti dómsmálaráðuneytið eftir umsóknum um setningu í tvö embætti dómara við Landsrétt og skipun í eitt embætti við réttinn. Átta sóttu um setningu í embættin tvö og fjórir um skipun í embætti Landsréttardómara.
Dómnefnd um hæfi dómara, sem í sitja fimm manns, hefur fengið allar umsóknirnar til meðferðar en samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu hafa þrír aðalmenn eða varamenn lýst sig vanhæfa til að taka þátt í störfum hennar. Kristín Benediktsdóttir og varamaður hennar Valtýr Sigurðsson hafa lýst yfir vanhæfi sínu vegna umsókna um setningu í embættin. Þess í stað hefur Reimar Pétursson, lögmaður og fyrrverandi formaður Lögmannafélags Íslands, verið settur ad hoc í það mál að tillögu Hæstaréttar.
Þá hefur Ragnheiður Harðardóttir lýst sig vanhæfa vegna umsókna um skipun í embættið og Halldór Halldórsson, varamaður hennar, getur ekki tekið þátt í störfum nefndarinnar í sama máli vegna forfalla. Ráðuneytið hefur óskað tilnefningu frá dómstólasýslunni um aðila til að taka sæti í nefndinni ad hoc til meðferðar þess máls. „Að öðru leyti hefur ráðuneytið ekki upplýsingar um annað en að reglulegir aðal- eða varamenn fjalli um umsóknir í báðum málum,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans um málið.
Staða losnaði við skipun í Hæstarétt
Alls sóttu fjórir um embætti dómara við Landsrétt sem var auglýst laust til umsóknar 3. janúar síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til síðasta mánudags, 20. janúar. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum.
Um er að ræða stöðu við Landsrétt sem losnaði þegar Ingveldur Einarsdóttir var skipuð dómari við Hæstarétt í desember.
Alls voru 15 dómarar upphaflega skipaðir í Landsrétt. Hæfisnefnd 15 umsækjendur hæfasta til að setjast í þau embætti. Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæfisnefndin hafði metið á meðal 15 hæfustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi samþykkti svo lista Sigríðar. Þeir fjórir sem hæfisnefndin taldi ekki á meðal hæfustu umsækjenda, en Sigríður bætti við á listann á kostnað annarra, voru Ragnheiður og Ásmundur Helgason auk Arnfríðar Einarsdóttur ogJóns Finnbjörnssonar.
Í kjölfarið hafa íslenskir dómstólar úrskurðað að Sigríður hafi brotið stjórnsýslulög með atferli sínu. Auk þess komst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu í málinu í mars í fyrra að dómararnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sigríðar væru ólöglega skipaðir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið réttláta málsmeðferð. Í kjölfar þess að dómur Mannréttindadómstólsins féll þá sagði Sigríður af sér embætti dómsmálaráðherra.
Þegar búið að skipa einn nýjan dómara og auglýsa eftir setningu
Einn þeirra ellefu sem voru löglega skipaðir í Landsrétt, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sagði starfi sínu lausu í fyrravor og greindi frá því að hann hygðist setjast í helgan stein.
Staða hans var auglýst og umsóknarfrestur rann út síðla í maí 2019. Alls sóttu þá átta um stöðuna, þar af tveir sitjandi dómarar í Landsrétti, Ásmundur og Ragnheiður. Þau eru bæði á meðal þeirra fjögurra landsréttardómara sem hafa ekki fengið að dæma í málum frá því að niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu var birt. Málinu var skotið til yfirdeildar Mannréttindadómstólsins og málflutningur fyrir honum fer fram í næsta mánuði.
Eiríkur Jónsson, þá lagaprófessor við Háskóla Íslands og einn þeirra sem Sigríður hafði ákveðið að skipa ekki þrátt fyrir að hæfisnefnd hefði metið hann sjöunda hæfastan allra umsækjenda í upprunalega skipunarferlinu, var þá skipaður í embættið.
Ásmundur og Ragnheiður eru bæði aftur á meðal umsækjenda nú, þrátt fyrir að vera þegar skipaðir dómarar við réttinn en mega ekki starfa þar vegna þess að upphafleg skipun þeirra var ólögmæt.
Þann 20. desember 2019 auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til setningar tvö embætti dómara við Landsrétt og rann umsóknarfrestur út þann 6. janúar síðastliðinn. Á vef Stjórnarráðsins segir að sett verði í embættin hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hafi lokið störfum.
Um er að ræða embætti þeirra Ásmundar og Jóns Finnbjörnssonar.