Fyrsta skóflustungan að nýbyggingu Alþingis var tekin í dag, 4. febrúar, og markar hún formlegt upphaf framkvæmda við nýbygginguna á Alþingisreit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis í dag.
Þá segir að byggingin sé þjónustukjarni sem í fyllingu tímans muni sameina á einum stað alla starfsemi nefndasviðs, skrifstofur þingmanna og funda- og vinnuaðstöðu þingflokka.
Hlé var gert á þingfundi á meðan Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri tóku fyrstu skóflustunguna. Að henni lokinni var þingmönnum, starfsfólki og öðrum gestum boðið upp á kaffi og kökur í Skála.
Á meðal gesta voru fyrrverandi forsetar Alþingis, arkitektar og aðrir hönnuðir og fulltrúar Framkvæmdasýslu ríkisins. Verktakafyrirtækið Urð og grjót ehf. sér um jarðvegsvinnu en það átti lægsta tilboð í þann verkþátt framkvæmdanna þegar hann var boðinn út síðastliðið haust. S. Helgason átti lægsta tilboð í vinnslu á steinklæðningunni sem verður utan á húsinu en sú vinna var boðin út í ágúst á síðasta ári. Útboð í vinnu við aðalbyggingu og tengiganga verða auglýst í vor og er gert ráð fyrir að uppsteypa hefjist í haust. Verklok eru áætluð í febrúar 2023, samkvæmt skrifstofu Alþingis.
Steingrímur sagði við tilefnið að hér færi nú af stað mesta framkvæmd á vegum Alþingis í 140 ár, það er frá því að Alþingishúsið sjálft reis á árunum 1880 til 1881. „Sú framkvæmd var reyndar risavaxin á þáverandi mælikvarða landsins. Fjárlög voru þá samþykkt til tveggja ára í senn og í frumvarpi því sem varð að lögum 26. ágúst 1879 fyrir árin 1880 og 1881 hljóðuðu tekjur Íslands – eins og það var orðað – og gjöld upp á 777 þúsund, 825 krónur og 20 aura,“ sagði hann.
Á hvoru ári um sig hefðu umsvifin sem sagt verið tæpar 390 þúsund krónur, en þinghúsið kostaði 120 þúsund, eða tæpan þriðjung árlegra umsvifa ríkisins eins og þau voru á þeim tíma. „Rétt er auðvitað að geta þess að þá var verið að byggja fyrir hvort tveggja í senn Alþingi og söfn landsins, en stærðargráðan var engu að síður þessi,“ sagði hann.
Kostnaðaráætlun upp á 4,4 milljarða
Þá benti hann á að þarna risi á næstu fjórum árum um 6.000 fermetra bygging sem mundi sameina á einum stað, undir einu þaki, skrifstofur fyrir alla þingmenn, aðstöðu fyrir þingflokka, fundaherbergi nefnda og vinnuaðstöðu starfsmanna þeirra, auk funda og ráðstefnuaðstöðu og margt fleira. Byggingin verður tengd nær öllum öðrum byggingum Alþingis þannig að innan gengt verður til Skála og þinghússins sjálfs auk húsalengjunnar við Kirkjustræti.
Samkvæmt Steingrími er kostnaðaráætlun fyrir bygginguna sjálfa upp á 4,4 milljarða króna að viðbættum verðbótum á byggingartíma. Af byggingunni mundi leiða mikið hagræði og sparnaður til lengri tíma litið, því leiga á fjölmörgum stöðum í Kvosinni á mishentugu húsnæði væri óhentugt og dýrt úrræði. „Mest um vert er þó að hér verða skapaðar nútímalegar og fyrsta flokks vinnuaðstæður fyrir þingmenn og ekki síður starfsfólk Alþingis. Hér verða góðar aðstæður til að taka á móti gestum sem til Alþingis og þingnefnda koma og Alþingi verður mun betur í stakk búið til að halda ýmis konar fundi og minni ráðstefnur.“
Í máli hans kom enn fremur fram að tveir fyrstu verkþættirnir væri þegar umsamdir, það er steinkápan utan á bygginguna en litbrigði í íslensku bergi mundi setja á hana sterkan svip og svo jarðvegsvinna í grunni byggingarinnar sem hefst á næstu dögum. Útboð fyrir bygginguna sjálfa yrði svo auglýst í vor og uppsteypa hefjast í haust.