Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning sautján aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir starfsmenn sveitarfélaga liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta. 80,6 prósent sagði já við samningnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Starfsgreinasambandi Íslands í dag.
Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal sextán félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu.
Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 3. til 10. febrúar. Í heildina var kjörsókn 32,83 prósent. Já sögðu 80,55 prósent en nei sögðu 16,33 prósent. 3,12 prósent tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 4.197 manns, samkvæmt tilkynningunni.
Samningurinn, sem undirritaður var 16. janúar síðastliðinn, er því samþykktur hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.