Nýtt útlánamet hjá lífeyrissjóðunum – Í fyrsta sinn yfir 100 milljarða

Þrátt fyrir að stærstu lífeyrissjóðir landsins hafi allir reynt að draga úr aðsókn í sjóðsfélagalán til íbúðarkaupa þá jukust ný útlán þeirra í fyrra. Lífeyrissjóðirnir hafa aldrei lána fleiri krónur til sjóðsfélaga en á árinu 2019.

Þrátt fyrir að hægt hafi á verðhækkunum á húsnæðismarkaði í fyrra jukust útlán lífeyrissjóða í krónum talið.
Þrátt fyrir að hægt hafi á verðhækkunum á húsnæðismarkaði í fyrra jukust útlán lífeyrissjóða í krónum talið.
Auglýsing



Alls lán­uðu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins 101,6 millj­arðar króna í sjóðs­fé­laga­lán á árinu 2019. Það er hæsta upp­hæð í krónum talið sem þeir hafa nokkru sinni lánað til íbúð­ar­kaupa, en fyrra metið var 99,2 millj­arðar króna árið 2017. Þegar tekið er til­lit til verð­bólgu síð­ustu tveggja ára var raun­virði útlána þó hæst á því ári. 

Þetta kemur fram í nýlega birtum tölum Seðla­banka Íslands um líf­eyr­is­sjóða­kerf­ið. 

Heild­ar­um­fang verð­tryggðra lána sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa veitt jókst um 17 pró­sent á árinu 2019. Það fór úr 353 millj­örðum króna í 414 millj­arða króna. Á sama tíma jókst hins vegar umfang óverð­tryggðra lána sem sjóð­irnir veittu þeim sem borga í þá um 42,5 pró­sent, fór úr 80 millj­örðum króna í 114 millj­arða króna. 

Verð­tryggðu lánin eru þó enn mun hærra hlut­fall af heild­ar­út­lánum líf­eyr­is­sjóða en þau óverð­tryggðu, eða 78 pró­sent á móti 12 pró­sent­u­m. 

Óverð­tryggð lán­taka jókst mikið

Óver­tryggð lán­taka sótti því í sig veðrið á síð­asta ári. Í októ­ber 2019 gerð­ist það í þriðja sinn í sögu íslenska líf­eyr­is­­­­sjóða­­­­kerf­is­ins að sjóðs­fé­lagar tóku meira að láni óverð­­­­tryggt en verð­­­­tryggt. Í hin tvö skipt­in, í des­em­ber 2018 og í jan­úar 2019, hafði verð­­­­bólga hækkað nokkuð skarpt og var á bil­inu 3,4 til 3,7 pró­­­­sent, eftir að hafa verið að mestu undir 2,5 pró­­­­sent verð­­­­bólg­u­­­­mark­miði Seðla­­­­bank­ans frá því í febr­­­­úar 2014. Í októ­ber var hún hins vegar 2,8 pró­­­­sent og spár gerðu ráð fyrir að verð­­­­bólgan myndi fara við og jafn­­­­vel undir 2,5 pró­­­­sent verð­­­­bólg­u­­­­mark­mið í nán­­­­ustu fram­­­­tíð. Það gerð­ist síð­­­an í des­em­ber þegar skörp lækkun skil­aði verð­­­bólg­unni niður í tvö pró­­­sent. Í jan­úar lækk­aði hún enn frekar og mælist nú 1,7 pró­sent. 

Auglýsing
Við þessu brugð­ust íslenskir lán­tak­end­ur. Í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra tóku þeir mun frekar verð­tryggð lán hjá líf­eyr­is­sjóð­unum en óverð­tryggð. Í nóv­em­ber var hlut­fallið 65 á móti 35 pró­sentum og í des­em­ber 59 á móti 41 pró­senti, verð­tryggðum lánum í vil.

Þessi þróun bendir til þess að íslenskir neyt­endur séu orðnir mun með­vit­aðri um hvernig vindar blása í efna­hags­líf­inu hverju sinni þegar þeir ákveða hvora lána­leið­ina þeir feta. Þegar verð­bólga hækkar færa þeir sig yfir í óverð­tryggð lán, en þegar hún lækkar þá snúa þeir sér í auknum mæli aftur að töku verð­tryggðra lána.

Reyna að hefta vöxt­inn

Útlána­aukn­ing líf­eyr­is­­sjóð­anna á síð­asta ári athygl­is­verð af nokkrum ástæð­­um. Í fyrsta lagi vegna þess að það hægði veru­­­lega á hækkun hús­næð­is­verðs í fyrra, en vísi­tala kaup­verðs alls íbúð­­­ar­hús­næðis á höf­uð­­­borg­­­ar­­­svæð­inu hækk­­­aði um 2,4 pró­­­sent á árinu 2019. Til sam­an­­­burðar hækk­­­aði hús­næð­i­verðið um 13,6 pró­­­sent á árinu 2017 og  5,8 pró­­­sent á árinu 2018.

Í öðru lagi þá var, líkt og áður sagði, umtals­verð verð­­­bólga í lok árs 2018 og í byrjun árs 2019. Verð­­­bólga hefur veru­­­leg áhrif á lána­kjör fjölda Íslend­inga þar sem flestir þeirra eru með verð­­­tryggð lán. Þegar leið á árið í fyrra lækk­­­aði verð­­­bólgan hins vegar skarpt og mælist nú 1,7 pró­sent, eða vel undir 2,5 pró­­­sent verð­­­bólg­u­­­mark­miði Seðla­­­banka Íslands.

Í þriðja lagi hafa stærstu líf­eyr­is­­­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­­­sjóður starfs­­­manna rík­­­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­­­sjóður verzl­un­ar­manna og Gildi allir reynt að draga úr eft­ir­­­spurn eftir sjóðs­­­fé­laga­lánum hjá sér með því að þrengja lána­skil­yrði og hækka vexti hjá sér. 

Líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða hins vegar enn upp á miklu betri íbúða­lána­kjör en við­skipta­bank­arn­ir. Lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir sem þeir bjóða á grunn­lánum (65 til 70 pró­sent af kaup­verði) eru 1,69 pró­sent. Til sam­an­burðar eru lægstu sam­bæri­legu lán sem við­skipta­banki veitir hjá Lands­bank­an­um, þar sem kjörin eru 3,2 pró­sent á 70 pró­sent lán­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent