Rio Tinto íhugar að loka álverinu í Straumsvík

Eigendur álversins í Straumsvík segja að raforkuverð á Íslandi sé ekki samkeppnishæft og boða endurskoðun á starfsemi versins. Til greina komi að loka álverinu.

álverið í straumsvík
Auglýsing

Rio Tin­to, sem á álverið í Straums­vík, ætlar að hefja „sér­staka end­ur­skoðun á starf­semi álvers­ins í Straums­vík til að meta rekstr­ar­hæfni þess til fram­tíð­ar­“. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á heima­síðu félags­ins. Í fyr­ir­hug­aðri end­ur­skoðun verða allar leiðir skoð­að­ar, þar á meðal frek­ari fram­leiðslu­minnkun og mögu­lega lok­un. End­ur­skoð­un­ar­ferl­inu verður lokið á fyrri helm­ingi árs 2020.

Í til­kynn­ing­unni segir að Rio Tinto vilji leita leiða til þess að bæta sam­keppn­is­stöðu álvers­ins, en að gert sé ráð fyrir því að rekstur þess verði áfram óarð­bær til skemmri tíma sökum ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs og lágs verðs á áli í sögu­legu sam­heng­i.  

Rio Tinto seg­ist nú leita allra leiða til að gera álverið arð­bært og sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mörk­uð­um, meðal ann­ars með sam­tali við stjórn­völd og Lands­virkj­un. Það sam­tal snýst um að reyna að lækka raf­orku­verð sem samið var um í nýjum samn­ingum sem gerðir voru árið 2010. 

Auglýsing
Alf Barri­os, for­stjóri Rio Tinto Alu­mini­um, segir í til­kynn­ingu á vef félags­ins, að fram­lag álvers­ins til íslensks efna­hags­lífs sé umtals­vert og félagið muni vinna náið með þeim sem eiga gagn­kvæma hags­muni að því að treysta fram­tíð þess. Þar með talið ­rík­is­stjórn Íslands, Lands­virkj­un, starfs­fólki, stétt­ar­fé­lögum og sveit­ar­fé­lög­um.

Vegna tap­rekstrar hefur fram­leiðsla álvers­ins í Straums­vík þegar verið minnkuð í 85 pró­sent af afkasta­getu álvers­ins. Áætluð fjár­hags­leg áhrif þess á tekjur Lands­virkj­un, sem selur því raf­magn, er tekju­minnkun um 2,5 millj­arða króna á ári.  Álverið er að fullu í eigu Rio Tinto og þar starfa um 500 manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent