Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir að það „virðast vera orðin einhver trúarbrögð“ að vera á móti sæstreng, svo heiftarlega að það sé umsvifalaust gert grunsamlegt ef einhver segir að það sé sjálfsagt að skoða málin. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook í dag.
„Ég tek eftir því að menn hlaupa upp til handa og fóta, telja sig geta sagt „hah, hvað sagði ég, hún berst fyrir streng!”,“ skrifar hún.
Ástæðan fyrir því að hún tjáir sig um málið er að hún var í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í gær, sem og í Víglínunni á Stöð 2, og telur hún að orð hennar þar hafi ekki falið í sér neina stefnubreytingu hjá stjórnvöldum. Hún vísar í frétt Viljans um málið þar sem hún segir að ranglega hafi verið sett í fyrirsögn að hún hafi í viðtalinu boðað könnun á fýsileika sæstrengs. Hún segist ekki hafa boðað neitt slíkt.
„Heldur svaraði spurningu Heimis Más almennt og sagði einfaldlega að ég gerði enga athugasemd við að kannað væri hvort kannski einhvern tímann væri sniðugt að selja raforku til útlanda. Rétt áður sagði ég það sama á Sprengisandi og að í þessu hagsmunamati yrði að sjálfsögðu að taka með í myndina þá verðmætasköpun sem getur orðið til með því að nýta orkuna hér á landi, störfin, áhrif á byggð o.s.frv. Þetta hef ég oft sagt,“ skrifar hún.
Forsendur geta breyst – Fráleitt að útiloka þetta um alla framtíð
Þá bendir ráðherrann á að síðast þegar þetta hafi verið kannað hafi niðurstaðan verið sú að lagning sæstrengs væri fremur langsótt og myndi ekki borga sig á markaðslegum grundvelli. „Forsendur geta breyst og fráleitt að útiloka um alla framtíð að þetta gæti orðið skynsamlegt. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar taldi þetta áhugaverðan möguleika á sínum tíma en það virðast vera orðin einhver trúarbrögð að vera á móti þessu, svo heiftarlega að það er umsvifalaust gert grunsamlegt ef einhver segir að það sé sjálfsagt að skoða þetta. Hvort hugsanlega kannski sé eitthvað í þessu fyrir Ísland, einhvern tímann.“
Hún segir að sæstrengur sé ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. Engin ný ákvörðun hafi verið tekin. Alþingi þurfi að taka ákvörðun um að hefja slíka framkvæmd. Hún segist sjálf hafa lagt til þær breytingar.
„Menn geta skammast í mér fyrir að loka ekki dyrum til framtíðar, fyrir að gera ekki athugasemd við að fá frekari upplýsingar fram í veröld sem hreyfist mjög hratt. Það verður þá að hafa það, ég mun ekki breyta þeirri nálgun minni á framtíð Íslands,“ skrifar Þórdís Kolbrún.
Ég tek eftir því að menn hlaupa upp til handa og fóta, telja sig geta sagt „hah, hvað sagði ég, hún berst fyrir...
Posted by Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadottir on Monday, February 17, 2020