Eignir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hækkuðu alls um 155 milljarða króna á árinu 2019, þar af voru fjárfestingatekjur 136,2 milljarðar, og námu eignirnar samtals 868 milljörðum samanborið við 713 milljarða árið áður.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum.
Árið 2019 var metár í 63 ára sögu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, samkvæmt tilkynningunni. „Vöxtur og velgengni einkenndu alla þætti í starfi sjóðsins. Lífeyrisþegar fengu greiddan meiri lífeyri en nokkru sinni fyrr, eignir jukust meira en dæmi eru um áður enda fjárfestingatekjur meiri en nokkru sinni fyrr og ávöxtun eigna hefur aðeins einu sinni áður orðið meiri, árið 2005. Vegna þessa góða árangurs og afkomu undanfarinna ára er sjóðurinn vel í stakk búinn til að takast á við þá áskorun sem fylgir hækkandi lífaldri þjóðarinnar.“
Þá kemur fram að eignasafn sjóðsins hafi verið vel áhættudreift. Erlend verðbréf hafi verið um 40 prósent heildareigna í lok ársins samanborið við 35 prósent í árslok 2018.
Um 16 prósent eignanna eru í innlendum hlutabréfum, 19 prósent í ríkisskuldabréfum. Sjóðfélagalán námu 120,7 milljörðum, eða um 14 prósent af heildareignum samanborið við 92,3 milljarða og rúm 13 prósent af eignum árið áður.
Enn fremur segir í tilkynningu sjóðsins að á árinu 2019 hafi að meðaltali 19 þúsund sjóðfélagar fengið lífeyrisgreiðslur úr samtryggingardeild sjóðsins samanborið við tæp 18 þúsund árið áður. Lífeyrisgreiðslur úr samtryggingardeild sjóðsins hafi verið að fjárhæð 16.039 milljónir króna. Árið áður hafi lífeyrisgreiðslur úr samtryggingadeild numið 14.315 milljónum og því hækkað um 12 prósent. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild hafi numið 684 milljónum króna.
„Tryggingafræðileg staða er mælikvarði á getu sjóðsins til að standa undir lífeyrisskuldbindingum sínum. Undanfarin ár hefur tryggingafræðileg staða sjóðsins verið sterk og styrktist enn á liðnu ári, var jákvæð um 8,6 prósent í lok ársins samanborið við 5,4 prósent árið áður,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt sjóðnum var raunávöxtun hans á árinu 2019 einhver hin besta í sögu sjóðsins, eða 15,6 prósent. Aðeins einu sinni áður hafi náðst betri ávöxtun, en það var árið 2005.