Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Nordic Visitor á ferðaskrifstofunni Terra Nova Sól. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka í dag.
Nordic Visitor hf. keypti ferðaskrifstofuna Terra Nova Sól hf. af dótturfélagi Arion banka í desember síðastliðnum. Terra Nova var hluti af TravelCo hf., félagi sem bankinn tók yfir í júní 2019, í kjölfar gjaldþrots PrimeraAir.
Kaupin voru meðal annars með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. Í tilkynningu sem send var út í desember kom fram að kaupverð væri trúnaðarmál.
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor, sagði í desember að Terra Nova og Nordic Visitor væru að mörgu leyti ólík þegar kemur að dreifileiðum og markaðssvæðum. Í því lægju þó mikil tækifæri.
„Ekki er fyrirhugað að sameina fyrirtækin heldur verður lögð áhersla á að deila þekkingu á milli fyrirtækjanna. Markmiðið með kaupunum er að halda áfram að bæta rekstur Terra Nova og breikka þjónustuframboð samstæðunnar. Félögin tvo eru í góðum rekstri í dag og eru bæði að skila heilbrigðri afkomu. Þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi íslenskrar ferðþjónustu þá eru enn mikil tækifæri til uppbyggingar. Vonandi verður hægt að aflétta síðustu fyrirvörum kaupanna sem fyrst þar sem ég hlakka til að hitta og hefja störf með öllu því reynslumikla starfsfólki sem hefur byggt upp félagið Terra Nova,“ sagði hann.