Með bréfi 17. des. 2019 gerði Sýn hf. kröfu á Ingibjörgu Pálmadóttur, Jón Ásgeir Jóhannesson, 365 miðla hf. og Torg ehf. á grundvelli samkeppnisákvæða í kaupsamningi Sýnar hf. við 365 hf. (hét áður 365 miðlar hf.) frá 14. mars 2017.
Í bréfinu er lýst þeirri skoðun að tilteknir þættir í starfsemi vefmiðilsins frettabladid.is samrýmist ekki þeim skuldbindingum sem fram komi í fyrrnefndum samningi.
Frá þessu er greint í árssreikningi Sýnar fyrir árið 2019, en eins og greint var frá í dag, tapaði félagið 1,7 milljarði króna á síðasta ári.
Stór ástæða fyrir tapinu, og versnandi afkomu milli ára, er niðurfærsla á viðskiptavild, sem rekja má til kaupa á fjölmiðlum 365 miðla hf. en Ingibjörg Pálmadóttir var stærsti eigandi félagsins, þegar viðskiptin voru gerð, en Jón Ásgeir Jóhannesson er eiginmaður hennar.
„Í ársreikningnum er vísað til þess að umrædd ákvæði
feli í sér rétt Sýnar hf. til að krefjast févítis/dagsekta að fjárhæð 5 millj. kr. á dag að viðbættum verðbótum. Á
þeim grundvelli er svo gerð krafa um greiðslu á 1.140 millj. kr. auk verðbóta. Af hálfu Ingibjargar, Jóns Ásgeirs
og 365 hf. var kröfunni mótmælt með bréfi 20. des. 2019. Sýn hf. hefur falið lögmanni að undirbúa höfðun
dómsmáls til heimtu þessarar kröfu og má búast við því að það verði höfðað á næstu vikum,“ segir í skýringum, ársreiknings.